Eftir að hafa komist í kristalskúluna hjá Gylfa Þorkelssyni á Selfossi er ekki úr vegi að fara Kjöl á stökki og niður í Skagafjörð og fá Karl Jónsson til að kíkja í kristalskúlu þeirra norðanmanna.
Byrjum á körlunum.
Snæfell – Haukar
Hef trú á því að Snæfell taki þetta 2-0. Eru einfaldlega númeri of stórir fyrir hið bráðefnilega og skemmtilega lið Haukanna sem gætu verið orðnir saddir eftir að hafa náð inn í úrslitakeppnina. Snæfellingar kunna vel við sig í svona úrslitakeppnum og hafa ekki gleymt sælunni frá síðasta tímabili.
Grindavík – Stjarnan
Grindvíkingar eru í mínum huga stórt spurningarmerki eins og staðan er. Tóku dýfu en rifu sig upp aftur, spurning hvort að skortur á leikstjórnendum kemur til með að há þeim. Bradford þarf að stíga vel upp eigi þetta að ganga hjá þeim. Spái oddaleik, framlengingu og naumum sigri Grindvíkinga í seríunni 2-1.
KR – Njarðvík
Klárlega meiri pressa á KR og engin óskastaða að mæta Njarðvíkingum í 8-liða úrslitum. Njarðvíkingar hafa allt að vinna eftir þróun tímabilsins hjá þeim. Án Fannars held ég að þetta verði erfitt fyrir KR nema að félagar hans undir körfunni stígi afburða sterkir upp og fylli hans vandfyllta skarð. Þar liggur stór hluti möguleika KR að mínu mati. Held að KR hafi þetta á endanum eftir oddaleik 2-1.
Keflavík – ÍR
Þrátt fyrir góðan endasprett ÍR-inga held ég að Keflavík sé of stór biti fyrir þá að þessu sinni. Klárlega komið hungur í Keflvíkinga að landa titli og með þennan mannskap eiga þeir möguleika á því. Held að þeir sópi ÍR-ingum út 2-0.
Þá er komið að stelpunum.
Keflavík – KR
Möguleikar KR rýrnuðu heldur betur með leikbanni Köru, hún var klárlega lykilleikmaðurinn í KR-liðinu fyrir þessar viðureignir, stigahæst og frákastahæst. Spurning hvernig staðan verður eftir þá tvo leiki sem Kara er í banni. Ef hún verður 2-0 fyrir Keflavík, verður afar erfitt að koma alla leið til baka. En nái KR óvæntum sigri og stöðunni 1-1, gæti tilkoma Köru gert gæfumuninn. Spái samt 3-1 fyrir Keflavík.
Hamar – Njarðvík
Sprettur á Njarðvíkurstúlkum upp á síðkastið og þessi viðureign er fullt tilefni tilhlökkunar. Heimavöllurinn ávallt erfiður í Hveragerði og hann reynist Hamarsstúlkum vel í þessari viðureign líka. Spái henni 3-1 fyrir Hamar en hörkuleikjum öllum saman.
Mynd: [email protected]





