HomeFréttirToppskólar í Bandaríkjunum hafa sýnt Ægi áhuga: Allt þarf að ganga upp

Toppskólar í Bandaríkjunum hafa sýnt Ægi áhuga: Allt þarf að ganga upp

 
Ægir Þór Steinarsson hefur vakið verðskuldaða athygli undanfarin tímabil og þó Fjölnismenn hafi ekki náð inn í úrslitakeppnina þetta árið kvaddi Ægir úrvalsdeild efstur í stoðsendingum. Sviptingar gætu þó verið í vændum þetta sumarið fyrir Grafarvogsliðið þar sem bandarískir háskólar hafa þegar sýnt Ægi og liðsfélaga hans Tómasi Heiðari Tómassyni mikinn áhuga. Þegar er eitt tilboð komið frá Bandaríkjunum og Ægir liggur undir feld þessi dægrin. Karfan.is tók púlsinn á Ægi skömmu eftir að Fjölnir hafði lagt ÍR í Grafarvogi í lokaumferðinni.
,,Ég er númer 8 og hélt að sú tala myndi koma upp í ár og við færum í úrslitakeppnina, það voru vissulega gríðarleg vonbrigði að hafna í 9. sæti eftir allar æfingarnar í sumar með hugann við úrslitakeppnina allan tímann. Ég verð bara að segja eins og er að þetta voru gríðarleg vonbrigði, það var óþægilegt að þurfa að treysta á önnur lið en markmið okkar var bara að klára ÍR í lokaumferðinni og sjá svo til,“ eins og flestir þekkja skelltu Haukar gestum sínum í KFÍ og náðu þannig síðasta sætinu inn í úrslitakeppnina.
 
Spurður út í leiktíðina í heild sagði Ægir að hún hefði vissulega ekki gengið áfallalaust fyrir sig. ,,Það kom bakslag í þetta þegar Tómas Holton hætti og Örvar Kristjánsson tók við, það fylgdu því ákveðnar breytingar en Örvar stóð sig frábærlega og svo bætist bara ofan á þetta útlendingavesen. Brandon Brown kom einu Bandaríkjaflugi of seint til okkar en það hefði verið skemmtilegra fyrir alla, áhorfendur, okkur og körfuboltann í heild að hafa fengið Brown fyrr inn í deildina. Ég er samt stoltur og sáttur þrátt fyrir vonbrigðin að komast ekki í úrslitakeppnina. Ég er stoltur af okkur leikmönnum, þjálfarateyminu, áhorfendum og öllum sem standa í kringum þetta,“ sagði Ægir sem hefur notið góðs af því að klúbburinn hafi gefið honum og öðrum ungum leikmönnum fjölda tækifæra til að sanna sig á meðal þeirra bestu.
 
,,Við erum stoltir af framleiðslunni hér hjá félaginu, margir strákar æfa öll sumur og fá ekki tækifæri til að spila en við æfum öll sumur, jafnvel tvisvar á dag á sumrin, og fáum tækifæri til að taka á því í deildinni og mæta sterkum erlendum leikmönnum,“ sagði Ægir sem enn er í yngri flokkum og leikur með unglingaflokki Fjölnis og er því að spila 40-50 leiki á tímabili.

,,Það fylgir þessu ákveðið álag og maður vill bara spila eins marga leiki og maður getur undir eins miklu álagi og hægt er,“ sagði Ægir en hver er staða hans í dag. Hefur hann sagt sitt síðasta með Fjölni í úrvalsdeild, er hann á förum í nám til Bandaríkjanna?

 
,,Það er margt í gangi, nokkrir skólar hafa haft samband og einn skóli í 2. deild bandaríska háskólaboltans hefur gert mér tilboð og tveir aðrir hafa mikinn áhuga og þeir eru í 1. deild. Auðvitað vill maður fara í 1. deild en það þarf allt að ganga upp, maður þarf að finna skóla sem hentar og bolta sem hentar manni sjálfum en auðvitað er skemmtilegt að vera í stóru og góðu umhverfi að spila,“ sagði Ægir og viðurkenndi að það gæti orðið gaman að eiga möguleika á því að mæta æskuvini sínum Hauki Helga Pálssyni sem leikur hjá Maryland.
 
 
Ægir vill ekki gefa upp um hvaða skóla ræðir en kvað skólana í 1. deildinni vera alvöru skóla. ,,Þetta eru toppskólar í 1. deildinni,“ sagði Ægir, en er hann toppnámsmaður? ,,Já, og mjög stoltur af því. Ég er kannski örlítið latari í skóla heldur en körfubolta en ég er áægtlega duglegur við bækurnar.
 
Ferðu núna í sumar til Bandaríkjanna eða tekur þú annað tímabil hér heima?
,,Það er inni í myndinni að taka annað tímabil hér heima en núna skoðar maður bara allt og ég er að klára Borgarholtsskólann og útskrifast í fjölmiðlatækni sem ég hef mikinn áhuga á,“ sagði Ægir en íslenskir fjölmiðlar, hafa tekið upp nafnið Geitungurinn, þegar þeir ræða og rita um Ægi svo hann virðist fjölmiðlavænn á alla kanta.
,,Ef eitthvað nám tengt fjölmiðlatækni kæmi upp í þessum pælingum með skólana erlendis þá yrði það væntanlega fyrsti kostur hjá mér, það er eitthvað heillandi við fjölmiðla og Bandaríkjamenn þekkja sitthvað um fjölmiðla svo þetta gæti orðið gaman.“
 
Ef þið Tómas farið báðir í nám til Bandaríkjanna í haust, er Fjölnir þá ekki bara 1. deildarfæða?
,,Ég er ekki sammála því, það eru frábærir leikmenn að koma upp þó biðin í þá gæti verið 1-2 ár þá verða þetta samt alvöru leikmenn. Svo kemur líka alltaf maður í manns stað, við höfum góðan unglinga- og drengjaflokk og einhverja fjölmennustu yngri flokka landsins. Það gæti þurft að styrkja liðið en það er mikilvægt að byggja þetta áfram á ungum leikmönnum og maður hefur sjálfur notið góðs af því undanfarin ár.“
 
Hvetjandi að fylgjast með Hauk, Helenu og fleirum
,,Þegar maður sér einhvern eins og Hauk eða Helenu Sverrisdóttur, einhvern sem er svona nálægt manni þá er það hvetjandi fyrir mann til að ná enn meiri árangri. Bæta við sig á æfingum og í leikjum, þetta er þvílík hvatning,“ sagði Ægir en hvar þarf hann að bæta við sig, hver eru næstu skref fyrir hann sem leikmann?
 
,,Til að fara á næsta ,,level“ þarf ég að bæta styrkinn og líka drekka í mig viskuna. Svo eru margir hlutir sem maður getur alltaf verið að laga og ég hef t.d. lagt mikla vinnu í skotið mitt undanfarin ár og það er að komast í góðan farveg. Þá eyðileggur það ekki fyrir að hafa góða þjálfara eins og Örvar og Bjarna og svo Tómas Holton á morgunæfingunum.“
 
Framundan er lokasprettur Íslandsmótsins með unglingaflokki Fjölnis og svo þrotlausar æfingar í sumar enda U 20 ára landsliðs Íslands á leið á Evrópumeistaramótið. ,,Bandaríkjahugleiðingar manns hvetja mann og gera mann enn hungraðri við æfingar í sumar sem og undirbúningurinn fyrir EM 20 í Sarajevo, það verður því nóg af æfingum í boði og spennandi sumar í vændum,“ sagði Ægir en hvernig leggst EM verkefnið í hann?
 
,,Ég held að það hafi sýnt sig að við verðum að leika hraðann bolta, góða liðsvörn og hafa móralinn góðan. Þegar við fórum út sem U 18 urðum við fyrir miklum vonbrigðum og gerðum ekki það sem við ætluðum okkur. Það væri frábært að fá annað tækifæri og komast út með U 20 í sumar enda eru allir sammála um að gera betur núna og hungrið er til staðar.“
 
Lognmollan er því engin hjá Ægi þessi dægri þó Fjölnismenn séu úr leik í Iceland Express deild karla, Bandaríkin kalla, EM 20 kallar en fyrsta verk á dagskrá er Íslandsmótið með unglingaflokki Fjölnis.
Viðtal[email protected]  
Fréttir
- Auglýsing -