ÍR og Haukar nældu sér í oddaleik í kvöld með sigrum á heimavelli og Njarðvíkurkonur jöfnuðu undanúrslitaeinvígi sitt gegn Hamri í Iceland Express deild kvenna. Þá tryggði Þór Akureyri sér oddaleik með sigri á Valsmönnum í Vodafonehöllinni.
Iceland Express deild karla:
Haukar 77-67 Snæfell
Staðan í einvíginu: 1-1
Gerald Robinson gerði 27 stig og tók 13 fráköst í liði Hauka. Jón Ólafur Jónsson var stigahæstur hjá Snæfell með 14 stig og 5 fráköst.
ÍR 106-89 Keflavík
Staðan í einvíginu: 1-1
Sigurður Gunnar Þorsteinsson gerði 27 stig og tók 10 fráköst í liði Keflavíkur en hjá ÍR var Kelly Beidler með 27 stig og 12 fráköst. Magnús Þór Gunnarsson bætti við 19 stigum hjá Keflavíkur og næstur á eftir Beidler hjá ÍR var Nemanja Sovic með 22 stig og 10 fráköst.
Iceland Express deild kvenna:
Njarðvík 86-78 Hamar
Staðan í einvíginu: 1-1
Julia Demirer gerði 32 stig og tók 15 fráköst hjá Njarðvík og Shayla Fields bætti við 25 stigum og 9 fráköstum. Hjá Hamri var Jaleesa Butler með 36 stig og 8 fráköst og Slavica Dimovska með 15 stig og 8 stoðsendingar.
1. deild karla
Valur 73-76 Þór Akureyri
Staðan í einvíginu: 1-1
Calvin Wooten gerði 32 stig í liði Vals en hjá Þór Akureyri var Konrad Tota með 20 stig.
Nánar síðar…





