Undanúrslitin eru hafin í dönsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik og lið Guðna Heiðars Valentínussonar, Bakken Bears, leiðir einvígið sitt gegn Team Fog Næstved 1-0 eftir 71-63 sigur í viðureign liðanna í gær.
Guðni var í leikmannahópi Bakken í gær en kom ekki við sögu í leiknum. Charlie Burgess var stigahæstur Bakken í leiknum með 24 stig en ein karfan hjá kappanum var heldur skrautleg og sjá má hana hér.
Bakken heimsækir svo Næstved á útivöll annað kvöld.
Ljósmynd/ Burgess í leik gegn Aabyhoj með Bakken Bears en hann gerði ævintýralega körfu í gær.





