,,Síðastliðinn október vorum ég og Wesley Hsu að skoða skó og ég sagði við hann í gríni að mig langaði að fá mér bleika skó,“ sagði Stefán Karel Torfason leikmaður U18 ára landsliðs karla og Þórs á Akureyri. Stefán vakti í vetur athygli hér heima og nú úti á Norðurlandamótinu fyrir að spila í bleikum Nike skóm og það er einungis og aðeins einungis á færi eðalmanna að komast upp með slíkan gjörning.
Það sem liggur að baki, og kannski sem færri vita, er að Stefán leikur í bleikum skóm til þess að styðja við göfugt málefni. ,,Hluti ágóðans af þessum skóm rennur til styrktar í rannsóknir á brjóstakrabbameini kvenna. Þegar ég frétti af þessu kom ekki annað til greina en að ég myndi leika í svona skóm. Loks þegar ég fékk svo skónna fannst mörgum þetta fyndið og gerðu grín að mér en ég tók það ekkert nærri mér enda þarf maður að vera með góðan ,,karakter“ til þess að spila í svona skóm,“ sagði Stefán en hann verður ekki einn í íslenska boltanum á næstu leiktíð í bleikum skóm.
,,Strákarnir í landsliðinu gerðu einnig smá grín af mér en samt mun minna en ég bjóst við. Mesta stríðni hef ég fengið frá dómurum og þjálfurum og ég mun aldrei gleyma svipnum á Einari Árna Jóhannssyni, þjálfara U18 ára liðsins (innsk. blm.), þegar hann sá mig fyrst í skónnum. Nokkrir pabbar í kringum körfuna hafa líka verið með glósur en stelpurnar eru yfirleitt sáttar með mig. Nú höfum við bræður, ég og Óli, ákveðið að spila báðir í bleikum skóm á næstu leiktíð til styrktar þessum sama málstað.“




