HomeFréttirEM kvenna: Spánn úr leik

EM kvenna: Spánn úr leik

Óvænt úrslit urðu á EM kvenna sem að nú fer fram þegar að Króatar unnu lið Spánverja sem fram að þessu var talið að myndi leika til verðlauna á mótinu.

 

Spænska liðið er því fallið úr leik og kemst ekki í undanúrslit sem hefur að auki þau áhrif að liðið mun missa af möguleikanum að komast á Ólympíuleikana í London. Þetta varð ljóst eftir að liðið tapaði í gær gegn Króatíu. Lið Spánar hefur unnið til verðlauna á EM samfleytt síðan 2001 og hlaut brons á HM síðast.

 
 
Á sama tíma er lið Svartfjallalands, sem er að taka þátt í keppninni í fyrsta, sinn búið að vinna alla sex leiki sína og eru á hörku siglingu í átt að úrslitunum. Lið þeirra vann sterkt lið Letta í gær með fjórum stigum og þær eru nú á toppnum í öðrum af tveim milliriðlum á undan Lettlandi, Frakklandi og Króatíu.
 
Í hinum riðlinum eru það Litháen sem eru efstar og hafa unnið alla sína leiki einnig til þessa en svo koma Rússar, Tékkar og Hvít-Rússar.
 
Einum leik var svo að ljúka en þar sigruðu Rússar lið Bretlands. Leikurinn vannst á síðustu mínútunni en Bretar leiddu leikinn frá lok þess þriðja fram til loka þess fjórða. Rússneski björninn vaknaði þá af værum blundi, jafnaði þegar ein og hálf mínúta var til leiks og vann að lokum með þremur stigum, 62-59.

[email protected]

 
Fréttir
- Auglýsing -