Rannveig Ólafsdóttir fyrrum leikmaður Hauka hefur ákveðið að leika með liði KR á næstu leiktíð. Rannveig hefur leikið upp alla yngri flokka Hauka en á síðustu leiktíð lék hún í Norður Karólínu fylki í Bandaríkjunum.
Þetta kemur fram á sport.is
Rannveig spilar stöðu bakvarðar og hefur lék veigamikið hlutverk bæði í yngri flokkum Hauka sem og með yngri landsliðum. Rannveig samdi við KR til næstu tveggja ára.
Þá framlengdi Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir samning sinn við KR einnig til tveggja ára.
Mynd: Rannveig og Þorbjörg við undirskrift – www.sport.is




