HomeFréttirPavel til Sundsvall - hittir þar Jakob og Hlyn

Pavel til Sundsvall – hittir þar Jakob og Hlyn

Á heimasíðu Sundsvall kemur fram að Pavel Ermolinskij sé genginn til liðs við félagið. Spilar hann þá með þeim Hlyni Bæringssyni og Jakobi Erni Sigurðarsyni næsta vetur hjá sænsku meisturunum. Eins og allir vita er nýráðinn þjálfari A-landsliðs karla, Peter Öqvist, þjálfari Sundsvall.
Pavel var valinn besti leikmaður Íslandsmótins á síðustu leiktíð en hann leiddi lið KR til sigurs í Iceland Express-deildinni á síðasta tímabili en þetta var þriðji Íslandsmeistaratitill félagsins á síðustu fimm árum.
 
Strax að loknu Íslandsmóti sagði Pavel að hann myndi reyna fyrir sér erlendis á næstu leiktíð og nú er ljóst að hans næsta stoppistöð er Svíþjóð.
 
Pavel sem hefur m.a. verið atvinnumaður í Frakklandi og á Spáni, þar sem hann var á mála hjá stórliði Unicaja Malaga, mun fá það verðuga verkefni að hjálpa Sundsvall að verja Svíþjóðartitil félagsins.
 
Mynd: Íslendingar fá ekki að njóta hæfileika Galdramannsins í Iceland Express-deildinni á næstu leiktíð – [email protected]
Fréttir
- Auglýsing -