HomeFréttirÆfingaleikir: Vesturlandið Snæfells að sinni

Æfingaleikir: Vesturlandið Snæfells að sinni

 
Það var einkar gaman að sjá æfingaleik hjá nágrönnunum og vesturlandsrisunum Snæfell og Skallagrím í Stykkishólmi í gærkvöld þar sem menn spiluðu sig hægt og bítandi af stað í leikinn. Liðin voru bæði að skora og gera mistök á víxl í leiknum þó Snæfell réði hraðanum og hélt Sköllum fyrir aftan sig heilt yfir.
Skallagrímsmenn voru klárir og stóðu vel í Snæfelli framan af fyrri hálfleik. Staðan var 26-20 fyrir Snæfell eftir fyrsta leikhluta. Engin voru þó tilþrifin hjá leikmönnum liðanna utan fína troðslu hjá Sveini Arnari hjá Snæfelli úr uppkastinu í byrjun leiks og einnig Dominique hjá Skallagrím en hann og Lloyd lofuðu góðu fyrir veturinn í Borganesi. Staðan í hálfleik var 44-39 fyrir heimamönnum í Hólminum.
 
Í seinni hálfleik fór að bera í milli með liðunum og Snæfell höfðu meira úthald í hlaupin í þriðja og fjórða hluta gegn ungu liði Skallagríms sem er að mestu skipað unglingaflokksmönnum og lofa góðu. Loftfimleikar Sveins Arnars héldu áfram og þá var komið að því Quincy Hankins Cole hæfi sig til flugs en tvær „alley-oop“ háloftatroðslur frá baseline litu dagsins ljós. Áhorfendum var greinilega skemmt og bar á tilhlökkun fyrir vetrinum ef svona sýningar verða á boðstólnum. Eftir þriðja hluta var staðan orðin 20 stig 77-57. Snæfell náði mikið af hraðaupphlaupum og bættu aðeins betur ekki nógu sannfærandi vörn sína og náðu um tíma 18-0 áhlaupi sem Borgnesingar höfðu ekki mikið í þegar staðan fór í 83-57. Snæfell sigraði 98-69 í þessum vesturlandsslag og heyrðist í Hólminum í kvöld að menn binda vonir við að Skallagrímsmenn geri atlögu að sæti í Iceland Express deildinni svo við fáum fleiri alvöru nágrannaslagi í deildinni.
 
Stigaskor Snæfells:
Brandon 28. Quincy 19/7 frák/5 stoð. Nonni Mæju 17/13 frák. Egill 11. Ólafur 7/10 frák/6 stoð. Þorbergur 6. Sveinn 4/7 frák. Hafþór 4. Magnús 2. Pálmi, Guðni og Daníel spiluðu en skoruðu ekki.
 
Stigaskor Skallagríms:
Lloyd 18/4 stoð. Hörður 13. Sigurður 12/9 frák. Dominique 10. Birgir 10/5 frák/4 stoð. Hallmar, Davíð Á og Davíð G skorðu 2 stig hver. Halldór, Andrés, Kjartan og Þorsteinn spiluðu en skoruðu ekki.
 
Símon B. Hjaltalín
 
(Ef þið hafið upplýsingar um úrslit úr fleiri æfingaleikjum endilega hafið samband á [email protected] )
Fréttir
- Auglýsing -