Hlynur Bæringsson er orðinn fyrirliði sænska körfuknattleiksliðsins Sundsvall en hann tekur við því hlutverki af Alex Wesby sem hélt til Hollands í sumar. www.mbl.is greinir frá.
Peter Öqvist þjálfari Sundsvall, sem reyndar er einnig landsliðsþjálfari Íslands, segir að valið hafi verið í stöðu fyrirliða í samráði við leikmenn sem hafi flestir kosið að Hlynur gegndi því hlutverki. Jakob Örn Sigurðarson var næstur Hlyni í kosningunni.
Hlynur hefur áður verið fyrirliði bæði Snæfells og íslenska landsliðsins.




