Körfuknattleiksdeild Hamars hefur fengið til sín tvo nýja leikmenn fyrir átök 1.deildar í vetur. Hamar hefur samið við bandaríska bakvörðinn Terrence Worthy sem kemur úr Concordia Irvine háskólanum í Bandaríkjunum. Worthy sem er víst ekkert skyldur James Worthy sem gerði gariðnn frægann með LA Lakers þykir góður varnarmaður og var leiðtogi í sínu liði þar sem hann skoraði 10.8 stig var með 2,5 fraköst og 2,5 stoðsendingar. www.hamarsport.is greinir frá.
Á heimasíðu Hvergerðinga segir ennfremur:
Karlalið Hamars hefur einnig samið við Bretann Louie Kirkman sem kom til reynslu á dögunum. Louie er ungur strákur sem á eftir að falla vel inn í hóp okkar manna í vetur. Louie spilaði sðast í enskur 3. deildinni og var þar stigahæsti leikmaðurinn.
Mynd/ Terrence Worthy




