Þá er bið körfuknattleiksunnenda á enda, keppni í Iceland Express deildunum hefst í kvöld og á morgun. Í kvöld eru það konurnar sem ríða á vaðið með heilli umferð en átta lið skipa úrvalsdeildina þetta tímabilið og leikin er fjórföld umferð þar sem fjögur lið munu komast í úrslitakeppnina. Neðsta lið eftir deildarkeppnina fellur svo í 1. deild.
Hér eru leikir kvöldsins í IEX-deild kvenna sem allir hefjast kl. 19.15:
Haukar-Njarðvík
KR-Hamar
Fjölnir-Keflavík
Valur-Snæfell
Titilvörn Keflavíkurkvenna hefst því í Grafarvogi eins og sjá má á leikjum kvöldsins en Keflavík varð bæði Íslands- og bikarmeistari á síðustu leiktíð… og það í öllum kvennaflokkum þar sem leikið var um Íslands- og bikarmeistaratitla!
Spá Karfan.is og KKÍ gera ráð fyrir að Keflavíkurkonur verji Íslandsmeistaratitil sinn en undirbúningstímabilið hefur verið þeim þungt. Ungir en efnilegir bakverðir Keflavíkur hafa fengið að spreyta sig í síðustu leikjum á meðan Ingibjörg Jakobsdóttir er meidd.
Haukar hafa verið sannfærandi á undirbúningstímabilinu og auk Jence Rhoads hafa þær bætt við sig öðrum erlendum leikmanni og því til alls líklegar. KR hefur á þéttum hóp að skipa með Ara Gunnarsson í brúnni sem nýr þjálfari liðsins.
Hildur Sigurðardóttir er komin heim í Hólminn og mun stýra leik Snæfells í vetur. Valskonur bættu myndarlega við sig í sumar og munu berjast um stóru titlana á tímabilinu. Hamar, Fjölnir og Njarðvík reka lestina en Njarðvíkingar komu sér inn í úrslitin í fyrra. Hamarskonur eru með ungan hóp sem og Fjölnir en í fjórfaldri umferð þá eru mörg stig í pottinum og ekki við öðru að búast en jafnri og spennandi keppni í vetur.
Góðar stundir!




