Körfuknattleiksdeild Bolungavíkur býður uppá myndbrot úr leik þeirra við Fram í 2. deild karla sem fram fór í 15.október síðastliðin. Myndbandið er hægt að finna hér. Því miður er tölfræði úr leiknum inná kki.is ekki alveg útfyllt. Þar kemur þó fram að stigahæsti maður Fram hafi verið Elvar Guðmundsson með 16 stig en í liði Bolungarvíkur var Pance Ilievski stigahæstur með 18 stig. Tölfræði leiksins má finna hér.
Pance þekkja þeir sem hafa séð KFÍ spila síðastliðin ár en þar hefur hann verið síðastliðin 5 tímabil. Pance flutti sig yfir í UMFB í sumar og segir í viðtali á heimasíðu UMFB að erfitt hafi verið að segja nei við "tösku fulla af fimmþúsundköllum". Viðtalið má finna hér.
Elvar Guðmundsson er þekktur í breiðholtinu þar sem hann hefur spilað með meistaraflokk ÍR síðastliðin þrjú ár þó hann hafi ekki verið fastamaður í liðinu öll þau ár.
Ef einhver álíka myndbönd úr körfuknattleik á íslandi leka á internetið viljum við endilega fá að heyra af því og allar ábendingar vel þegnar á [email protected]
Mynd: úr leik UMFB og Víkings, myndasafn
Gísli Ólafsson




