HomeFréttirHaukar bæta við sig þekktri stærð

Haukar bæta við sig þekktri stærð

Það fór ekki á milli mála fyrir þá sem lögðu leið sína í Grafarvoginn í gær að Haukar hafa bætt við sig erlendum leikmanni og kemur það einnig fram á heimasíðu Hauka. Christopher Smith heitir kappinn og lék með Njarðvíkingum á síðustu leiktíð og Fjölni þar á undan.
Smith var ekki með Haukum en samkvæmt heimildum náðist ekki að græja fyrir hann leikheimild í tæka tíð.  Það má því búast við að það verði frágengið þegar að Haukar mæta Keflavík í Toyota-höllinni á föstudag.

Smith var með 20.9 stig að meðaltali og 8.1 frákast á meðan hann lék með Njarðvík en hjá Fjölni var hann með 23.4 stig og 12 fráköst.

Mynd: [email protected]

[email protected]
 

Fréttir
- Auglýsing -