Bolvíkingar hafa verið duglegir að taka upp leiki sína og setja brot úr þeim á internetið. Á heimasíðu þeirra má finna umfjallanir um leiki þeirra og mynbrot úr flestum leikjum. Nýjasta myndbrotið er úr leik Álftanes og UMFB sem fór fram í forsetahöllinni svokallaðri. Bolungarvík vann leikinn 62-71.
Ef einhverjir luma á öðrum eins myndbrotum höfum við hér á karfan.is alltaf gaman af vita af þeim og er ykkur bent á að senda okkur póst á [email protected]




