Landsliðsmennirnir Jón Arnór Stefánsson og Haukur Helgi Pálsson voru báðir á ferðinni í ACB deildinni á Spáni í gær og máttu báðir sætt sig við ósigur á útivelli. Jón með Zaragoza gegn Cajasol og Haukur með Manresa gegn Estudiantes.
Cajasol 77-64 CAI Zaragoza
Jón Arnór Stefánsson var í byrjunarliði Zaragoza í leiknum og var þriðji stigahæsti leikmaðurinn hjá liðinu með 11 stig á rúmum 28 mínútum. Bracey Wright var stigahæstur hjá Zaragoza með 19 stig en auk þess að gera 11 stig þá var Jón Arnór einnig með tvö fráköst og tvær stoðsendingar. Eftir tapið í gær er Zaragoza í 8. sæti deildarinnar með 7 sigra og 7 tapleiki.
Asefa Estudiantes 76-70 Manresa
Haukur Helgi Pálsson lék í rúmar 15 mínútur í leiknum en náði ekki að skora að þessu sinni. Stigahæstur í tapliði Manresa var Micah Downs með 21 stig. Haukur tók aðeins eitt skot í leiknum sem var þristur sem vildi ekki rata rétta leið en hann var samt sem áður með 3 fráköst. Manresa er nú í 11. sæti deildarinnar með 6 sigra og 9 tapleiki.
Myndbrot úr leik Cajasol og Zaragoza:




