Þjálfarinn Borce Ilievski heldur þann 25. janúar næstkomandi út til Spánar þar sem hann verður staðsettur í Madríd fram til 20. febrúar næstkomandi. Karfan.is ræddi við Borce um heimsóknina þar sem hann verður í þjálfarateymi Asefa Estudiantes sem leikur í ACB deidinni.
,,Á meðan dvöl minni stendur úti verð ég í þjálfarateymi Asefa og mun vinna með þjálfaranum Pepu Hernández. Tilgangur ferðarinnar er að taka framförum sem atvinnuþjálfari, slípa til skipulagshæfileikana og svo auðvitað tækifærið til að taka þátt í bestu deild Evrópu,“ sagði Borce sem ætlar að kynna sér málin ítarlega.
,,Ég hef mikinn áhuga á því að skoða hvað þarna er gert, hvernig svona stórlið gera hlutina og þá hef ég einnig mikinn áhuga á ,,njósnastarfinu“ (e. scouting), einstaklingsæfingum og grasrótarstarfinu,“ sagði Borce sem er spenntur að hefja störf með Hernandez.
,,Það er mikill heiður að vinna með manni eins og Hernández sem stýrði Spánverjum til gullverðlauna á HM í Japan 2006. Þá mun ég reyna síðustu vikuna mína á Spáni að heimsækja Real Madrid og kvennaliðið Rivas Ecopolis sem er m.a. áhugasamt um að fá til sín ungan íslenskan leikmann svo ekki sé meira sagt,“ sagði Borce sposkur.
,,Ég er mjög þakklátur vinum mínum hjá spænska körfuknattleikssambandinu fyrir alla aðstoðina við að gera þessa heimsókn að veruleika.“




