HomeFréttirÖrvar: Tveir lélegustu varnarleikir okkar í vetur

Örvar: Tveir lélegustu varnarleikir okkar í vetur

Örvar Þór Kristjánsson var ósáttur við að fá 45 stig á sig gegn ÍR í fyrri hálfleik en öskuvondur yfir því að fá 62 stig á sig í þeim seinni. Fjölnismenn riðu ekki feitum hesti úr Hellinum í kvöld þegar liðið lá 107-97 gegn ÍR í Iceland Express deild karla og þrátt fyrir fjarveru Árna Ragnarssonar og Hjalta Vilhjálmssonar sagði þjálfari Fjölnis að liðið ætlaði síður en svo að skýla sér á bak við fjarveru þeirra.
,,Leikirnir gegn ÍR hafa verið tveir lélegustu varnarleikirnir okkar í vetur, þeir setja á okkur 45 stig í fyrri hálfleik og mér fannst það of mikið en þeir tóku okkur gersamlega í nefið í þeim síðari. ÍR spilaði vel í kvöld og ég tek það ekki af þeim en við létum þá líta allt of vel út sóknarlega,“ sagði Örvar en Fjölnir og ÍR höfðu bæði 10 stig í deildinni fyrir leikinn í kvöld.
 
,,Já það er dýrt að tapa svona leik, maður fer auðvitað í alla leiki til að vinna og ég taldi okkur eiga góða möguleika en við vorum þungir á okkur varnarlega og það er óafsakanlegt,“ sagði Örvar sem sér þó jákvæðu hliðarnar.
 
,,Það jákvæða sem ég tek út úr þessu er t.d. innkoman hjá Daða Berg og Gunni Ólafs kemur vel inn í sínar fyrstu meistaraflokksmínútur og stendur sig vel. Þó við séum án Árna og Hjalta er það ekki eitthvað sem við ætlum að skýla okkur á bak við, við vorum bara lélegir í kvöld.“
 
Aðspurður hvenær Árni Ragnarsson væri væntanlegur aftur í búning í fyrsta lagi svaraði Örvar:
 
,,Vonandi kemst Árni inn í þetta í byrjun mars og það verður þá bara bónus fyrir okkur. Ég hef fulla trú á mínum strákum, þeir spiluðu flottan körfubolta á köflum í kvöld en ef þú spilar ekki vörn á móti svona sóknarliði eins og ÍR þá tapar þú bara.“
 
 
   
Fréttir
- Auglýsing -