Í dag hefst Evrópukeppnin í B-deild hjá U18 ára landsliðum og er íslenska liðið komið til Bosníu en það mætir Sviss kl. 16:00 að íslenskum tíma.
Tímamismunurinn er tvær klukkustundir svo leikurinn er skráður kl. 18:00 að staðartíma. Á heimasíðu KKÍmá nálgast hægra megin á síðunni aðgang að mótinu, lifandi tölfræði og meira.
Síðasti leikur U18 ára landsliðsins í aljþóðlegri keppni var gegn Finnum og tapaðist hann stórt í úrslitaleik NM fyrr á þessu ári en okkar menn eru vel gíraðir og huga á hefndir gegn Finnum sem eru með okkur í riðli, en fyrst Sviss!
Tengt efni:






