Íslenska U18 ára landsliðið vann áðan sinn þriðja leik í röð í Evrópukeppni B-deildar þegar liðið vann góðan 81-65 sigur gegn Norðmönnum. Finnar unnu Svía fyrr í dag sem setur Ísland eitt í toppsæti C-riðils.
KR-ingurinn Martin Hermannsson (Hauksson) var stigahæstur í íslenska liðinu þriðja leikinn í röð með 20 stig, 5 fráköst og 4 stoðsendingar. Honum næstur var Elvar Már Friðriksson með 18 stig, 5 fráköst og 3 stoðsendingar. Þá var Valur Orri Valsson með 14 stig, 5 fráköst og 3 stoðsendingar og Matthías Orri Sigurðarson gerði 11 stig og tók 4 fráköst.
Á morgun mætast Ísland og Svíþjóð kl. 12:00 en von er á hörkuslag sem fyrr hjá þessum liðum sem hafa eldað saman grátt silfur síðustu ár á Norðurlandamótinu í Solna.
Mynd/ Matthías Orri Sigurðarson gerði 11 stig í íslenska liðinu í dag.






