HomeFréttirÍslandsmeistaraefni Keflavíkur með sigur í fyrsta leik

Íslandsmeistaraefni Keflavíkur með sigur í fyrsta leik

Keflavík hafði betur gegn Haukum í Schenker-höllinni í gærkvöld þegar að liðin mættust í fyrstu umferð Domino‘s deildar kvenna. Bæði lið frumsýndu sinn erlenda leikmann , Keflavík Jessica Ann Jenkins og Haukar Siarre Evans, en þeir komu báðir til móts við liðin á mánudag.Voru þær báðar mjög duglegar og vinnusamar hvort sem var í sókn eða vörn og lítur út fyrir að þarna séu gæða leikmenn á ferð.
 
Byrjunarlið Hauka: Margrét Rósa, Gunnhildur, Dagbjört, Jóhanna og Siarre Evans
Byrjunarlið Keflavíkur: Sara Rún, Birna, Ingunn Embla, Pálína og Jessica Jenkins
 
Keflavík spilaði 2-3 manna pressuvörn frá fyrstu mínútu og reyndu að slá Hauka útaf laginu með því en Haukar spiluðu ágætlega út úr því og var fyrsti leikhlutinn mjög jafn. Mesta forustan var einungis fjögur stig hjá hvoru liði og enduðu Haukar leikhlutann einu stigi yfir , 17-16.
 
Haukar byrjuðu annan leikhluta mjög ákveðnar og ætluðu sér að sýna að mikið vanmat væri á ferð í 5.-6. sætis spánni. Þær voru yfir allan leikhlutann fyrir utan þrjú skipti sem Keflavík náði að jafna. Sara Rún hélt Keflavík inn í leiknum með því að losa sig við varnarmanninn sinn og laumast inn í teiginn í opið sniðskot trekk í trekk.
 
Staðan í hálfleik því 36-34. Hjá Haukum var Siarre Evans stigahæst með 14 stig og 11 fráköst og hjá Keflavík var Sara Rún efst með 12 stig og 6 fráköst og Jessica Jenkins var ekki langt á eftir með 11 stig og 4 fráköst. Pálína og Birna komust varla á blað, báðar með einungis 2 stig en einbeittu sér að góðri vörn í staðinn.
 
Strax í upphafi þriðja leikhluta byrjaði Keflavíkurhraðlestin að síga framúr Haukum og virtust Haukastúlkur vera orðnar pínu þreyttar eftir að vera búnar að vera berjast við stífa pressuvörn Keflavíkur frá fyrstu mínútu. Sóknin gekk ekki vel, mikið um tapaða bolta og smá einbeitingarleysi í vörninni. Keflavík endar leikhlutann með þægilega 11 stiga forustu, 46-57.
 
Haukar reyndu að klóra í bakkann og áttu ágætis kafla og minnkuðu muninn niður í 5 stig. Lengra komust þær þó ekki og það var þægileg staða fyrir Keflavík að eiga Pálínu og Birnu inni í öruggum 62-79 sigri Keflavíkur en báðar áttu glimrandi góðan seinni hálfleik og endaði Pálína leikinn með 12 stig og 6 stolna bolta og Birna 10 stig og 9 fráköst.
 
Besti leikmaður Keflavíkur var hin unga, og ekki lengur efnilega heldur hágæða leikmaður, Sara Rún Hinriksdóttir með 19 stig og 9 fráköst og henni næst var Jessica Jenkins með 18 stig og 5 fráköst
 
Hjá Haukum var Siarre Evans atkvæðamest með trölla tvennu, 31 stig og 19 fráköst, sem dugði þó skammt.

Mynd: [email protected]

Umfjöllun: KBergmann og [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -