spot_img
HomeFréttirÚrslit: Tindastóll pakkaði Grindavík saman

Úrslit: Tindastóll pakkaði Grindavík saman

Sex leikir fóru fram í Lengjubikarkeppni karla í kvöld. Ríkjandi Lengjubikarmeistarar Tindastóls sem leika í 1. deild þetta tímabilið tóku á móti Íslandsmeisturum síðustu tveggja ára, Grindavík, og tóku þá gulu í karphúsið 104-87!
 
Framlengja varð í Hertz-Hellinum og KFÍ lagði Stjörnuna svo það er óhætt að segja að nokkuð hafi verið um óvænt úrslit í kvöld.
 
Úrslit kvöldsins í Lengjubikar karla:
 
ÍR 95-103 Snæfell (framlengt)
Breiðablik 74-120 KR
Tindastóll 104-87 Grindavík
KFÍ 87-77 Stjarnan
Fjölnir 76-97 Haukar
Hamar 70-82 Skallagrímur
 
Fyrirtækjabikar karla, A-riðill
 
Tindastóll-Grindavík 104-87 (30-23, 28-18, 29-26, 17-20)

Tindastóll: Antoine Proctor 30/6 fráköst/5 stoðsendingar, Helgi Rafn Viggósson 22/10 fráköst, Darrell Flake 18/7 fráköst, Pétur Rúnar Birgisson 11/4 fráköst/7 stoðsendingar, Ingvi Rafn Ingvarsson 7/5 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 7/4 fráköst, Viðar Ágústsson 5/5 fráköst, Sigurður Páll Stefánsson 4, Páll Bárðarson 0, Hannes Ingi Másson 0, Friðrik Þór Stefánsson 0, Ingimar Jónsson 0.
Grindavík: Ólafur Ólafsson 21/6 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 17, Þorleifur Ólafsson 13/5 fráköst, Jón Axel Guðmundsson 11/9 fráköst, Christopher Stephenson 10/8 stoðsendingar, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 9/4 fráköst, Hinrik Guðbjartsson 4, Ómar Örn Sævarsson 2, Hilmir Kristjánsson 0, Jens Valgeir Óskarsson 0.
Dómarar: Eggert Þór Aðalsteinsson, Jon Bender
 
Fyrirtækjabikar karla, B-riðill
 
Fjölnir-Haukar 76-97 (20-25, 23-21, 20-21, 13-30)

Fjölnir: Elvar Sigurðsson 24, Davíð Ingi Bustion 12, Ólafur Torfason 11/7 fráköst, Páll Fannar Helgason 7, Emil Þór Jóhannsson 6/5 fráköst, Haukur Sverrisson 5, Garðar Sveinbjörnsson 4, Andri Þór Skúlason 4/8 fráköst, Hreiðar Bjarki Vilhjálmsson 3, Helgi Hrafn Halldórsson 0, Smári Hrafnsson 0, Alexander Þór Hafþórsson 0.
Haukar: Haukur Óskarsson 25/6 fráköst, Davíð Páll Hermannsson 23/6 fráköst, Helgi Björn Einarsson 15/6 fráköst, Sigurður Þór Einarsson 10, Emil Barja 10/7 fráköst/10 stoðsendingar, Kári Jónsson 9/4 fráköst, Kristján Leifur Sverrisson 5, Kristinn Marinósson 0/4 fráköst, Hjálmar Stefánsson 0, Gunnar Birgir Sandholt 0, Jón Ólafur Magnússon 0, Alex Óli Ívarsson 0.
Dómarar: Georg Andersen, Davíð Kristján Hreiðarsson
 
Fyrirtækjabikar karla, C-riðill
 
Hamar-Skallagrímur 70-82 (17-28, 12-20, 14-17, 27-17)

Hamar: Halldór Gunnar Jónsson 22, Danero Thomas 20/12 fráköst/6 stolnir, Snorri Þorvaldsson 6, Bragi Bjarnason 6, Bjarni Rúnar Lárusson 5, Aron Freyr Eyjólfsson 4/6 fráköst, Sigurbjörn Jónasson 3, Stefán Halldórsson 2, Ingvi Guðmundsson 2, Magnús Sigurðsson 0, Emil F. Þorvaldsson 0.
Skallagrímur: Orri Jónsson 22/13 fráköst, Sigurður Þórarinsson 16/7 fráköst, Davíð Guðmundsson 16/7 fráköst, Davíð Ásgeirsson 10, Sigursteinn Orri Hálfdánarson 6, Trausti Eiríksson 5/7 fráköst/5 stoðsendingar, Kristófer Gíslason 4, Valur Sigurðsson 3/5 fráköst.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson, Gunnar Þór Andrésson
 
 
KFÍ-Stjarnan 87-77 (27-19, 17-14, 23-23, 20-21)

KFÍ: Jason Smith 25/8 stoðsendingar, Mirko Stefán Virijevic 22/8 fráköst, Hraunar Karl Guðmundsson 19/9 fráköst, Ágúst Angantýsson 7/11 fráköst, Jón Hrafn Baldvinsson 5/11 fráköst, Pavle Veljkovic 4, Óskar Kristjánsson 3, Hákon Ari Halldórsson 2, Jóhann Jakob Friðriksson 0, Jón Kristinn Sævarsson 0, Pance Ilievski 0, Björgvin Snævar Sigurðsson 0.
Stjarnan: Marvin Valdimarsson 19/10 fráköst, Kjartan Atli Kjartansson 14/5 fráköst, Dagur Kár Jónsson 12/6 stoðsendingar, Daði Lár Jónsson 11/4 fráköst, Sæmundur Valdimarsson 11/7 fráköst, Fannar Freyr Helgason 8/4 fráköst, Magnús Bjarki Guðmundsson 2, Sigurður Dagur Sturluson 0, Christopher Sófus Cannon 0.
Dómarar: Jón Guðmundsson, Davíð Tómas Tómasson
Áhorfendur: 200

*Tölfræði vantar úr viðureignum Breiðalik-KR og ÍR-Snæfell. 
 
Mynd úr safni/ Ómar: Helgi Rafn var með Drangeyjartvennu í liði Tindastóls í kvöld. 
  
Fréttir
- Auglýsing -