Skráning stendur yfir í firma og hópakeppni KR körfu en hún mun fara fram laugardaginn 12. október næstkomandi. Fyrstu leikir
hefjast klukkan 15:00 og verður spilað í DHL-Höllinni.
Reglur og fyrirkomulag er eftirfarandi:
· Keppnin hefst 15:00 laugardaginn 12. október
· Umsjón er í höndum leikmanna meistaraflokks karla og kvenna.
· Þátttökugjald 20.000- krónur (menn geta keypt leikmenn meistaraflokks fyrir 10.000-)
· Leikmenn meistaraflokks og aðrir góðir stúkudómarar sjá um dómgæsluna.
· Leiktími verður 2×10 mínútur og leikklukka ekki stöðvuð.
· Leikið 5 x 5 en allt að 10 mega vera í liði.
· Leikmenn verða útilokaðir við 4 villu.
· Skotvilla verður 1 víti sem gefur 2 stig.
· Riðlar verða settir upp þegar skýrist með þátttökuna.
· Allir fá pottþétt 4 leiki.
· Að móti loknu verða seldir KR-borgarar og bjór í félagsheimilinu
Nú er bara að smala saman í lið og skrá sig, skráningin stendur yfir og þarf að skrá sig hjá Brynjari Þór Björnssyni með tölvupósti ( [email protected] ). Skráningu lýkur föstudaginn 11. október kl. 12:00. Tölvupóstur verður sendur með upplýsingum um leikjaniðurröðun föstudaginn 11. október. Einnig mun heimasíðan fylgjast vel með og flytja upplýsingar af keppninni.
Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin en öllum er frjálst að vera með og viljum við eindregið hvetja áhugasama að taka þátt og hefja körfuknattleikstímabilið á skemmtilegri firmakeppni.



