Tindastóll sló Fjölni út í Poweradebikarnum á dögunum. Í leiknum sáust svaðaleg tilþrif þegar Daron Lee Sims varði troðslutilraun frá Antoine Proctor leikmanni Tindastóls.
Tindastólsmenn voru afar ósáttir með að ekki hafi verið dæmd villa á Sims þarna og fengu m.a. tæknivíti dæmt á sig í kjölfarið fyrir mótmæli. Ekkert var dæmt og því um svaðaleg varnartilþrif að ræða en nú getur hver dæmt fyrir sig og séð þessa fléttu en Fjölnismenn hafa komið þessu á Youtube:



