spot_img
HomeFréttirAlmar hættur hjá Keflavík

Almar hættur hjá Keflavík

Miðherjinn Almar Stefán Guðbrandsson er hættur hjá úrvalsdeildarliði Keflavíkur en þetta staðfesti leikmaðurinn í dag við Karfan.is. Almar sagði honum og þjálfaranum Andy Johnston lítt koma saman og að þess vegna væri nú komið að leiðarlokum.
 
 
„Hlutverk mitt í liðinu var lítið sem ekki neitt,“ sagði Almar við Karfan.is en hann hefur leikið rúmar sex mínútur að meðaltali í leik með Keflavík á tímabilinu. Aðspurður hvort Almar sé kominn með annað lið sagðist hann ekki hafa skoðað þau mál ennþá.
  
Mynd/ [email protected] – Almar í baráttunni með Keflavík gegn Snæfell fyrr á leiktíðinni.
Fréttir
- Auglýsing -