Nú hafa leikdagar í undanúrslitum karla og kvenna verið ákveðnir og mun RÚV Íþróttir sýna beint tvo leiki af fjórum. Hjá konum eigast við laugardaginn 1. febrúar kl. 15.00 Snæfell og KR í Stykkishólmi. Á sunnudeginum 2. febrúar kl. 19.15 mætast svo Keflavík og Haukar en sá leikur verður sýndur beint á RÚV Íþróttir.
Báðir leikir karla í undanúrslitunum fara fram mánudaginn 3. febrúar.
Tindstóll tekur á móti ÍR í Síkinu á Sauðárkróki en Tindastólsmenn sýna sinn leik væntanlega beint á netinu líkt og alla þeirra heimaleiki.
RÚV Íþróttir sýnir svo leik Grindavíkur og Þórs Þorlákshafnar sama kvöld frá Röstinni í Grindavík. Báðir leikirnir hefjast kl. 19.15.
Úrslit Poweradebikarsins
Sigurvegarar leikjanna mætast svo í beinni á RÚV laugardaginn 22. febrúar í Laugardalshöllnni þar sem leikið verður til úrslita um titilinn hjá konum og körlum.
Mynd úr safni/ Stjörnumenn fögnuðu í Höllinni á síðustu leiktíð.



