spot_img
HomeFréttirSnæfell fóru vandræðalaust í Höllina

Snæfell fóru vandræðalaust í Höllina

 
Það voru Snæfellsstúlkur sem fengu heimaleik gegn KR-stúlkum í undanúrslitum Poweradbikarsins. Þessi lið hafa verið að spila jafna leiki, spennandi og fyrirfram búist við hörkuleik því spilað var uppá miða í stórleikinn í Laugardalshöll 22. febrúar nk. Og það á ekki að þurfa að gíra leikmenn upp fyrir slíka viðburði.
 
 
 
Leikurinn hófst með látum en Snæfell komust strax í 13-4 en eftir að hafa verið 6-4 yfir setti Helga Hjördís sniðskot og þrist og heimastúlkur voru að spila sterka vörn og taka góð varnarfráköst eftir slök skot KR, Snæfell var einnig að taka mikilvæg sóknarfráköst. KR reyndi að pressa eftir skoraða körfu komust nær 16-12 en Snæfell leystu það þokkalega og Eva Margrét smellti þrist þegar mest á reyndi og KR voru að sækja í sig veðrið, 19-12 fyrir Snæfell. Staðan eftir fyrsta hluta 22-12 fyrir Snæfell sem var að stjórna leiknum.
 
 
Þegar staðan varð 24-12 hafði Snæfell náð 8-0 áhlaupi á KR, sem reyndu áfram pressu og uppskáru að komast einu sinni í boltann og nýta sér það. Snæfellsstúlkur voru yfirvegaðar, gáfu í og komust í 30-16 í upphafi annars hluta og voru áfram að taka öll fráköst á báðum endum vallarins og enn var Eva Margrét að smella niður stórri körfu. Vesturbæingar gáfust ekki upp og náðu að halda sig um 10 stigum á eftir 35-25 þegar líða tók á fyrri hálfleik og komu einstakir ljósir punktar öðru hvor hjá þeim varnarlega en Bergþóra Holton og Ebone Henry voru að leiða þær áfram í sókninni. Staðan var 41-34 í hálfleik eftir að Guðrún Gróa kom boltanum niður á lokaflautinu í miklum dansi í teignum en KR höfðu aðeins saxað á.
 
Hjá Snæfelli var Hildur Sigurðardóttir komin með 10 stig og Chynna Brown 8 stig. Snæfell hafði tekið 29 fráköst, 13 sóknar og 16 varnar. KR stúlkur höfðu tekið 20 fráköst, 7 sóknar og 13 varnar. Bergþóra Holton var komin með 11 stig og Ebone Henry 8 stig.
 
 
Helga Hjördís kom Snæfelli í 45-36 með þrist í upphafi seinni hálfleiks en Björg Guðrún svaraði fyrir KR með þrist einnig 49-41. Þegar ljósu punktar í leik KR komu og þær sóttu á var eins og það væri bara hægt í svo lítinn tíma í einu og þá fengu Snæfellsstúlkur að gera það þær vildu til að auka forystuna aftur sem þær gerðu með góðum fráköstum og stolnum boltum og komust í 60-45 eftir að Sigrún Sjöfn í KR uppskar tæknivillu. Snæfell tók þriðja hluta 23-15 og voru yfir fyrir lokafjórðunginn 64-49.
 
 
Um miðjan fjórða hluta var staðan 69-55 fyrir Snæfell og leikar fóru harðnandi. KR hittu ekki vel og flestir boltar hrukku til heimastúlkna sem voru að nýta sér það og komust í 75-55 og voru vel einbeittar í að klára þetta og ekki missa niður forskotið líkt og í síðasta leik gegn KR. Ebone Henry fór útaf eftir óíþróttamannslega villu þegar um 2:30 voru eftir og Snæfell 77-57 yfir. Snæfell tóku 19 sóknarfráköst eins og engin væri morgundagurinn og uppskáru annan séns trekk í trekk. Það var ekkert eftir á tank KR sem urðu að játa sig sigraðar og áttu einfaldlega engin svör í dag. Rebekka Rán Karlsdóttir rak svo síðasta naglan í leikinn með svakalegri flautukörfu og Snæfell sigraði sannfærandi 88-61 og fara í Laugardalshölllina 22. febrúar nk.
 
 
Snæfellstúlkur voru með 52 fráköst gegn 37 frá KR og 6 leikmenn Snæfells skiluðu yfir 10 stigum og allt liðið 114 í framlag gegn 59 frá KR.
 
 
Snæfell: Chynna Brown 27/9 frák/7 stoðs/3 stolnir. Hildur Björg 15/11 frák. Helga Hjördís 12/7 frák. Hildur Sigurðardóttir 11/6 frák/6 stoðs. Guðrún Gróa 10/8 frák/5 stoðs/6 stolnir. Eva Margrét 10/3 frák. Rebekka Rán 3. Hugrún Eva 0. Silja Katrín 0. Aníta Rún 0. Edda Bára 0.
 
KR: Bergþór Holton 18/7 frák. Ebone Henry 17/4 frák/5 stoðs. Sigrún Sjöfn 6/7 frák/4 stoðs. Helga Einarsdóttir 6/8 frák. Björg Guðrún 6. Rannveig Ólafsdóttir 6. Sara Mjöll 2. Þorbjörg Andrea 0. Kristbjörg Pálsdóttir 0. Anna María 0. Ragnhildur Kristinsdóttir 0. Sólrún Sæmundsdóttir 0.
 
 
 
Umfjöllun/ Símon B Hjaltalín  
Fréttir
- Auglýsing -