Jón Halldór Eðvaldsson er farinn frá sem þjálfari kvennaliðs Grindavíkur í Domino´s deildinni. Þetta staðfesti fulltrúi í stjórn kvennaráðs KKD Grindavíkur við Karfan.is í dag.
Ástæða brotthvarfs Jóns mun vera staða liðsins í deildinni en Grindavík er í næstneðsta sæti deildarinnar. Lewis Clinch Jr. leikmaður karlaliðs Grindavíkur mun taka við starfi Jóns Halldórs sem aðalþjálfari liðsins en honum til aðstoðar verður Hamid Dicko.
Mynd/ [email protected] – Jón Halldór við stjórnartaumana í Röstinni síðastliðna helgi þegar Grindavík tapaði gegn Snæfell.



