HomeFréttirHaukar unnu í Hveragerði

Haukar unnu í Hveragerði

Hamar tóku á móti Haukum í lokaumferð dominosdeildar kvenna í kvöld í leik þar sem lítið var um að keppa fyrir bæði lið. Haukar í góðum málum í öðru sæti og Hamar búnar að missa af úrslitakeppninni og lausar við fall. Leikurinn bar þess þó ekki merki þar sem var um mjög fjörugan og skemmtilegan leik að ræða. Bæði lið áttu góða kafla þar sem hitt kom fáum vörnum við og svo var leikurinn jafn og spennandi undir lokin. Haukar voru þó sterkari og fóru með 71-74 sigur af hólmi.
 
Hamar byrjuðu mjög vel og voru komnar í 10-0 eftir tæpar fimm mínútur. Bjarna Magnússyni leyst ekkert á gang mála og tók leikhlé. Hamri tókst að bæta við þrist áður en Haukar komust loksins á blað þegar Margrét Rósa Hálfdanardóttir smellti niður þrist. Hann kom af stað 7-0 kafla hjá Haukum áður en að leikurinn jafnaðist út og liðin fóru að skiptast á körfum. Haukar áttu svo góðan endasprett þar sem þær skoruðu 5-0 og staðan aðeins eitt stig 23-22 að loknum fyrsta leikhluta.
 
Annar leikhluti var gríðarlega jafn þar sem liðin skiptust næstum því á körfum í hverri sókn. Hamarsstúlkur fóru svo í algjöran ham fyrir aftan þriggjastigalínuna undir lok leikhlutans þar sem Fanney Lind Guðmundsdóttir setti tvo þrista og Íris Ásgeirsdóttir einn. 41-36 fyrir Hamri í hálfleik.
 
Hamar komu inn af miklum krafti eftir hálfleikinn og sundurspiluðu Hauka 7-0 á upphafsmínútunum og komust tíu stigum yfir 48-38. Íris varð fyrir því óláni að fá dæmda á sig óíþróttamannslegavillu eftir að Jóhanna Björk Sveinsdóttir stal boltanum og komst ein í hraðaupphlaup. Íris var fast á hælum hennar, og eiginlega of fast því tærar á henni rákust í Jóhönnu svo hún datt. Algjört óviljaverk en óíþróttamannslegvilla engu að síður þar sem að Jóhanna var komin í kjörið færi. Í kjölfarið á því fylgdi góður kafli hjá Haukum þar sem þær skoruðu 11-0. Þá voru leikmenn beggja liða komnar vel í gírinn og var skorað á víxl næstu mínúturnar en Hamar þá aðeins aðgangsharðari og komust þær átta stigum yfir 60-52. Haukar lokuðu hins vegar leikhlutanum á 5-0 kafla og staðan því aðeins þrjú stig 60-57.
 
Haukar héldu áfram á sömu braut og þær enduðu þriðja leikhlutann á og byrjuðu þann fjórða á 5-0 kafla, og því búnar að vera á 10-0 áhlaupi áður en Hamri tókst að svara. Leikar hnífjafnir, 62-62 á þeim tímapunkti en Haukar náðu síðan yfirhöndinni og leiddu 66-71 þegar þrjár mínútur voru eftir. Hamar sóttu á og minnkuðu muninn í 71-74 með eina mínútu til leiksloka en þeim tókst ekki að skora meira.
 
 
Mynd/ K. Bergmann – Sú sem komst næst því að vera í fókus úr leiknum í kvöld
 
Fréttir
- Auglýsing -