spot_img
HomeFréttirAlmar semur við Keflavík

Almar semur við Keflavík

Keflvíkingurinn Almar Stefán Guðbrandsson skrifaði í gær undir tveggja ára samning við Keflavík. Almar hóf sl. leiktíð með Keflvíkingum en gekk um miðbik tímabilsins til liðs við ÍG. Frá þessu er greint á heimasíðu Keflavíkur.
 
 
Á vefsíðu Keflvíkinga segir einnig:
 
Með nýjum þjálfara koma ný tækifæri og Almar ákvað strax að hann hyggðist taka slaginn með sínu uppeldisfélagi. 

Þá skrifaði Aron Ingi Albertsson einnig undir tveggja ára samning en um er að ræða fyrsta samning Arons í meistaraflokki. Aron sem var í skiptinámi í Argentínu um tíma er bróðir Ragnars Geralds leikmanns meistaraflokks og sonur harðjaxlins og grillmeistarans Alberts Óskarssonar.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -