Æfingabúðir Jenny Boucek, WNBA þjálfara og fyrrum leikmanns kvennaliðs Keflavíkur hófust eldsnemma í morgun. Að sögn aðstandanda körfuboltabúðanna voru yfir 100 stúlkur sem skráðu sig til leiks og var yngri hópur þeirra mættur eldsnemma nú í morgun á fyrstu æfinguna. Ekki var að sjá annað en að stúlkurnar væru nokkuð sáttar með þessar æfingabúðir. Myndasafn frá búðunum er hægt að skoða hér.



