Frank Booker Jr. og félagar töpuðu í gær nokkuð óvænt gegn liði Kansas State 56:59 og Oklahoma sem eru “rankaðir” númer 17 þetta árið eru nú með 8 sigra og 5 töp í Big 12 riðlinum. Það var þristur frá Marcus Foster leikmanni Kansas sem gerði útslagið þegar um 3 sekúndur voru eftir af leiknum. Booker Jr. skoraði 5 stig í leiknum og tók 3 fráköst á 18 mínútum.



