spot_img
HomeFréttirStefán: Þvílíkir höfðingjar allir sem einn

Stefán: Þvílíkir höfðingjar allir sem einn

Litlu mátti muna að stórslys yrði á Holtavörðuheiði í kvöld þar sem fjölbíla árekstur varð í kófi og blindu á heiðinni. Meðal þeirra sem voru þar á ferð voru dómarar í leik Tindastól og Þórs frá Þorlákshöfn, þeir Davíð Kristján Hreiðarsson, Ísak Ernir Kristinsson og Björgvin Rúnarsson.
 
 
Þeir höfðu lent í smávægilegum árekstri og voru stopp og einn þeirra var fyrir utan bílinn að athuga með skemmdir þegar stór bíll kemur æðandi út úr kófinu og lendir beint á bílnum þeirra með miklu afli.  Litlu mátti muna að þeir Ísak, sem stóð fyrir utan, hefði lent fyrir bílnum en honum var kippt frá á síðustu stundu.  Áreksturinn var harður og er talið að bíll þeirra sé gjörónýtur á eftir.
 
Stefán Jónsson, formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls brást skjótt við og hélt til móts við þá félaga og sótti þá á heiðina. Ákveðið var, í samráði við KKÍ og dómarana sjálfa að bruna norður og klára leikinn þó tafir yrðu. Það má segja það eins og er að það er töluvert afrek hjá þeim félögum að halda áfram og dæma leikinn eftir þessa þrekraun og eiga þeir mikið hrós skilið. Dæmdu eins og herforingjar!
 
Hjalti Árnason tíðindamaður Karfan.is í Síkinu ræddi við Stefán Jónsson formann KKD Tindastóls um atvikið í kvöld og hann var ekki að spara lofið til handa dómurum kvöldsins:
 
 
Fréttir
- Auglýsing -