HomeFréttirMatthías: Heimavöllurinn mun á endanum skipta máli

Matthías: Heimavöllurinn mun á endanum skipta máli

Matthías Orri Sigurðarson hefur þegar kvatt úrvalsdeildinni á Íslandi og verður í námi í Bandaríkjunum á næstu leiktíð. Við fengum hann eingu að síður til að skoða eldsnöggt oddaviðureign Hauka og Keflavíkur sem hefst á eftir kl. 16:00.

„Ég held að þetta verði jafn leikur í 40 mínútur en það verður hins vegar lítið skorað. Keflavík verður alltaf skrefinu á undan en unglingarnir í Hawks hrista stressið og reynsluleysið af sér í lok þriðja leikhluta og síga fram úr. Íslandsvinurinn Damon Johnson hefur víst spilað einn eða tvo svona leiki áður og mun því byrja sterkt á meðan Francis mun halda Haukunum inní leiknum þangað til að Íslendingarnar taka við seinni partinn.

Spái troðfullri höll á Ásvöllum þar sem handboltaaðdáendur Hafnarfjarðar sjá sér fært um að mæta með trommur og aldrei að vita nema DJ kvöldsins hendi í hið góðkunna lag Sweet Caroline þeim til heiðurs. Svo sé ég að á eitthverjum tímapunkti í þriðja leikhluta láta tveir íslenskir örvhentir menn til sín taka og skiptast á þristum. Valur Vals bankar einum inn á meðan Kári Jóns hendir í and one þrist. En heimavöllurinn mun á endanum skipta máli og Haukarnir vinna þennan leik með 3. Lokastaða 83-80.

Fréttir
- Auglýsing -