Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur setti áðan tilkynningu á Facebook-síðu deildarinnar um að leikmaður B-liðs Njarðvíkur, Friðrik Erlendur Stefánsson hefði hnigið niður í leik með liðinu. Atvikið átti sér stað í fyrsta leikhluta gegn Haukum B. Í tilkynningunni segir að Friðrik sé nú kominn í góðar hendur lækna og verði til frekari skoðunar í Reykjavík. Karfan.is sendir Friðriki og fjölskyldu hans bestu batakveðjur.
Tilkynning KKD UMFN:
Vegna atviks í leik UMFN B og Hauka B:
Eins og áhorfendur voru nú vitni að í kvöld að þá hneig leikmaður Njarðvíkur, Friðrik Stefánsson niður í miðjum fyrsta leikhluta liðanna.
Friðrik er nú kominn í góðar hendur lækna og sjúkraflutningamanna á leið til Reykjavíkur til frekari skoðunar.
Stjórn Kkd. UMFN vill koma á framfæri þökkum til allra aðila sem komu að aðhlynningu Friðriks þegar mest á reyndi. Hann er nú kominn til meðvitundar og á batavegi til allra lukku.
Sérstakar þakkir viljum við skila til Haukamannsins Gulla Briem en hann stjórnaði aðgerðum fyrir komu sjúkraflutningamanna og stóð sig eins og hetja. Áhorfendur, dómarar og andstæðingar eiga einnig þakkir skilið fyrir auðsýndan skilning á aðstæðum.
Fyrir fánann og UMFN.



