HomeFréttirHeima er best!

Heima er best!

 

Fáir leikmenn deild þeirra bestu á Íslandi hafa unnið jafn marga titla og Magnús Þór Gunnarsson. Hann, eins og svo margir vita fór um árið í ákveðið ferðalag um deildina (Njarðvík, Grindavík & Skallagrímur) og Danmörku, en það ferðalag er einmitt mjög ólíkt þeim ferðalögum sem sveitungar hans hafa áður farið. Magnús, eða MG10 (eins og heimamenn tala um hann) er þó aftur kominn heim til Keflavíkur. Karfan.is ákvað við það tilefni að heyra aðeins í þessum mikla keppnismanni og útkomuna má sjá hér fyrir neðan.

 

 

Hvernig og afhverju ákvaðst þú að taka slaginn með Keflavík næsta vetur?

Það spila nokkrar ástæður þar inní en eg er buinn að prufa nokkra staði og það er búið að vera mjög gaman en samt ekkert alveg eins og i Keflavík. Kannski kominn sá tími að ég miðli reynslu minni og því sem ég kann og það vill ég gera í Keflavík.

 

Þau hafa verið snörp en góð ferðalögin sem þú hefur tekið á þínum feril, t.a.m. ekki margir sem hafa afrekað að spila fyrir öll Suðurnesjaliðin…

Já það er satt, tvö og hálft í Njarðvík, hálft i Grindavík og hálft i Borgarnesi, en það er nú bara þannig, að það skiptir ekki hvað liðið heitir sem eg spila fyrir, ég geri alltaf mitt besta og það er það sem skiptir mig máli. Þó svo að aðrir sjái mig sem djöfulsins Keflvíking, get ég glaður sagt að, einmitt, hafi ég gert mitt besta, hvar sem ég var.

  

Ef þú yrðir að velja eitt þessara liða, hvaða lið væri það þá og afhverju?

Það er eiginlega auðsvarað. Danmörk yrði auðvitað fyrst. Það var geggjað að vera þar og svo kæmi Skallagrímur af þeim liðum sem ég spilaði fyrir hér heima. Þar leið mér eins og heima hjá mer. Var geggjað vel tekið á því sem og á móti mér og sá tími get ég sagt, var mér dýrmætur.

 

Hvaða hlutverk sérð þú fyrir þér að spila í þeim kynslóðaskiptum sem eru í gangi hjá Keflavík?

Já, það verða miklar breytingar hjá Keflavík þetta árið, en það er ekki eins og hin stóru liðin hafi ekki farið í gegnum svipaða hluti. Njarðvík fór i gegnum þetta fyrir þrem árum með fínum árangri. Núna þurfum við bara að gera það líka. Ekkert óeðlilegt við það. Það kemur að þessu á einhverjum tímapunkti hjá öllum liðum held ég. Mitt hlutverk er að sýna peyjunum hvernig á að skjóta sem mest og vera með sem mestu stælana, haha, nei. Mitt hlutverk verður að miðla minni reynslu til þeirra og taka á mig leiðtogahlutverkið. Það eru flestir, ef ekki allir, búnir að segja að Keflavík verði ekki góðir á næsta tímabili, en það er svosem bara þeirra líka. Ég ætla að sýna af mér það sem ég get, bæði í leikjum sem og utan vallar/á æfingum. Keflavík er búið að vera stórt lið frá því að ég man eftir mér, og, það er ekkert á leiðinni að fara að breytast.

 

Nú veit ég að það er langt í næsta tímabil, en hverskonar bolta/leik sérð þú fyrir þér að liðið spili næsta tímabil?

Ég ætla að vona að við förum í að hlaupa og skjóta sóknarlega og vera með læti í 2-2-1 pressu hinumegin á vellinum eins og við gerðum í “gamla daga”. Slíkur bolti hentar okkur vel, eigum 9 titla því til sönnunar. Keflvískur bolti, spilaður sem slíkur, hefur alltaf verið öðrum framar, svo ég held það sé bara rétt. Það er líka skemmtilegast að fá að skjóta lélegum skotum þegar vörnin er í lagi því þá er maður ekki tekinn útaf. 

 

Ef þú fengir að velja tvo leikmenn til þess að gangast í lið með þér/ykkur fyrir næsta tímabil, hverjir væru það og afhverju?

Þetta er strembið. Ég myndi fyrir það fyrsta velja Arnar Freyr Jónsson, að hann kæmi aftur og tæki eitt tímabil með mér heima. Við byrjuðum saman og hann er sá besti leikstjórnandi sem ég hef nokkurntíman spilað með. Hinn væri Helgi Magnússon úr KR, því, þar er á ferðinni leikmaður sem gerir alltsaman. Virkilega flottur leikmaður, sem mætti þó, haha, bæta vítin sín, haha. 

 

Nú hefur Keflavík aldrei þurft að bíða jafn lengi eftir þeim stóra og þeir hafa nú gert, væntingar því líklegast á leiðinni uppúr þakinu fyrir næsta tímabil…

Já nákvæmlega, við höfum ekki unnið þann stóra siðan 2008, það eru 8 ár síðan. Að hugsa sér að það séu til lið sem hafi aldrei unnið, og, jafnvel, ennfrekar, aldrei einusinni spilað til úrslita. Ég held samt að væntingar hja stuðningsmönnum í Keflavík verði öðruvísi þetta árið, þó leikmenn og þjálfarar ætli sér að sjálfsögðu að vinna tvöfalt á næsta ári. Þannig er metnaðurinn í Keflavík og honum myndi ég aldrei, ekki fyrir neitt, vilja breyta.

 

Hvaða lið sérð þú fyrir þér sem stærstu hindranirnar í veginum næsta tímabil og afhverju?

Það er erfitt að segja. Ætli það væri ekki KR og mjög líklega líka Stjarnan. KR verður væntanlega með sama lið, sem er svakalegt og svo hefur Stjarnan verið að stimpla sig inn, þrátt fyrir að hafa ekki enn unnið hinn stóra, síðustu ár.

 

Hvað er það besta við að vera kominn aftur heim til Keflavíkur?

Þrjú orð… Heima er best!

Fréttir
- Auglýsing -