HomeFréttirEnginn með stærri hjörtu en þessir tveir!

Enginn með stærri hjörtu en þessir tveir!

 

Mikið er að gerast hjá landsliði okkar íslendinga næstu misserin. Fyrst eru það Smáþjóðaleikarnir, hér heima í byrjun júní, en svo lokaúrslit Eurobasket í Berlín næsta haust. Við það tilefni fannst okkur kjörið að hafa uppi á nokkrum fyrrum landsliðsmönnum Íslands og fá að spyrja þá að nokkrum spurningum.

 

Sá fyrsti í röðinni er ekki af verri endanum, Pétur Guðmundsson, en hann ásamt því að leika marga leiki fyrir Íslands hönd spilaði einmitt meðal annars fyrstur okkar manna í deild þeirra bestu, NBA.

Hér er nokkuð skemmtileg grein um hann frá 2008.

 

Nafn: Pétur K. Guðmundsson

 

Ferill: 1972 – 1992

 

Félagslið / tímabil: Valsari for life! Valur 1972-1975, 1981. High school í USA 1975-1977, University of Washington 1977-1980, NBA 1981-’82, 1986 – 1989, ÍR 1982-1984, Tindastóll 1990-1992,

 

Landsliðsferill: 53 leikir, frá 1977-1991 (ólöglegur frá 1981-1989 vegna FIBA reglna um NBA spil).

 

Hvernig var tilfinningin að vera valinn í landslið fyrst?

Það var alltaf frábær tilfinning að vera valinn í landsliðið. Fyrsti leikurinn var í Evrópukeppninni, C-riðli.

 

Hvernig var fyrsti leikur þinn fyrir Ísland?  

Fyrsti leikurinn var skemmtilegur en við töpuðum honum.  Held ég muni rétt að hann hafi verið í Hemel Hempstead í Englandi og á móti enska landsliðinu.

 

Var móðir þín viðstödd viðureignina?

Nei, mamma var ekki á þeim leik! Hún var bisí í vinnunni hjá Flugleiðum en með þeirri vinnu gerði hún mér kleift að fljúga ótal sinnum til og frá USA á skólaárunum, á stand-by, til að spila með landsliðinu!

 

Hver var eftirminnilegasti leikurinn sem þú lékst fyrir Ísland?

Þeir voru nokkrir, en sennilega voru leikirnir tveir á móti Finnum vorið 1981 áður en við fórum í C – Evrópukeppnina í Sviss minnisstæðastir. Ástæður voru tvennar: 1. Það var njósnari frá Detroit Pistons á leikjunum að kíkja á mig, og 2. Við unnum seinni leikinn en það var í fyrsta sinn sem við unnum Finnana. Eftir þá leikina fékk ég að vita að ég yrði valinn í nýliðavalinu 1981.  Vissi bara ekki hvar ég yrði í röðinni!

 

Hver var sá besti leikmaður sem þú spilaðir með fyrir landsliðið og afhverju?

Þetta er ekki erfið spurning að svara og ég held ég móðgi engan þótt ég segi að Jón Sigurðsson hafi verið besti leikmaðurinn sem ég hafi spilað með í landsliðinu.  Hann var leiðtogi, mjög góður varnarmaður og frábær leikstjórnandi og skytta, en það besta var að hann kunni og þorði líka að gefa inn á stóra manninn! 

 

Hversu ánægður varðst þú við það að fylgjast með landsliðinu tryggja sér sæti á sínu fyrstu lokum stórmóts?

Ég er mjög stoltur af þessum strákum og þeir sýndu enn einu sinni að það má aldrei afskrifa íslendingana! Það að ná þessum frábæra árangri með því að vinna englendingana á heimavelli þeirra gerði það bara sætara.

 

Afhverju heldur þú að það hafi loksins tekist fyrir liðið að tryggja sér seðilinn á lokamót?

Fyrst og fremst er þetta sigur strákanna. Þeir hafa lagt á sig mikla vinnu og fyrir vikið eru margir farnir að spila sem atvinnumenn í Evrópu. Svo verð ég nú að gefa forsvarsmönnum KKÍ viðurkenningu líka fyrir að leggja sitt af mörkum til þess að breyta kerfinu þannig að þetta yrði hægt!

 

Hvernig heldur þú að Íslandi eigi eftir að vegna í þessum sterka riðli sem þeir í drógust?

Þetta verður geysilega erfitt. B riðillinn gæti verið sterkasti riðillinn í mótinu! Besti sénsinn er kannski að vinna heimamennina, þjóðverjana.

 

Ef þú fengir að senda einn fyrrum leikmann Íslands með liðinu á Evrópumótið, hver væri það þá og hvernig myndi hann hjálpa liðinu?

Það er alltaf got að bæta við hæð í körfuboltalið.

 

Hvert telur þú vera, fengir þú að velja lið allra tíma, byrjunarliðs uppstilling íslenska landsliðsins?

Það væri gaman að prófa þessa uppstillingu: Jón Arnór Stefánsson, Jón Sigurðsson, Valur Ingimundarson, Hlynur Bæringsson, Pétur Guðmundsson.

 

Heldur þú, að þú sjálfur sem leikmaður, upp á þitt besta, værir á leið með íslenska liðinu til Berlín næsta vor?

Já.

 

Hver væri þín helsta samkeppni og myndir þú taka hann/þá?

Ekki endilega sanngjörn spurning. Okkar eini sanni miðherji, Ragnar, er mjög efnilegur en ungur og óreyndur. Ég, upp á mitt besta var að spila með og á móti bestu leikmönnum heims.

 

Hvaða ungi leikmaður, sem ekki hefur spilað áður fyrir landsliðið, myndir þú veðja á að ætti eftir að spila yfir 50 landsleiki í framtíðinni?

Tryggvi Snær Hlinason.

 

Hverja telur þú tvo mikilvægustu leikmenn íslenska liðsins í dag og af hverju?

Jón Arnór Stefánsson og Hlynur Bæringsson eru leiðtogar þessa liðs. Jón gerir allt sem að maður í hans stöðu getur gert fyrir landsliðið. Þekktur fyrir að vera eldharður varnarmaður og góð skytta og  bætir við sig sem sóknarmaður þegar hann spilar fyrir landsliðið.  Hlynur er ekki hár á heimsmælikvarða en ekki segja honum það! Hann spilar alltaf upp fyrir sig, er ávalt að takast á við stærri menn inn í teig en á móti verða stóru mennirnir að dekka hann allt út fyrir 3ja stiga línuna. Enginn með stærri hjörtu en þessir tveir!

 

Á að bregða landi undir fót og fylgja liðinu til Berlín næsta vor?

Ég á ekki von á því en mun fylgjast með þeim úr fjarlægð.

Fréttir
- Auglýsing -