Í dag eru um 5 dagar þangað til úrslit NBA deildarinnar hefjast. Þar sem að lið Golden State Warriors og Cleveland Cavaliers munu etja kappi um hvort liðið verði NBA meistarar þetta árið. Þessir 5 dagar hinsvegar, eru þó heillangur tími fyrir hinn venjulega áhugamann. Þó dagarnir komi kannski ekki á óvart, eru þeir þó, eitt það lengsta frí sem áhorfendur hafa þurft að fara í í allan vetur.
Því ákváðu Blikamenn að, annað kvöld, setja saman þetta "Pubquiz" til að drepa tímann fyrir áhangendur komandi föstudagskvöld, í Smáranum kl. 20:00…
Hérna skráir þú þig til leiks.
Tilkynning frá atburðinum á Facebook:
Hefur þú áhuga á körfu???
Þykistu vita eitthvað um NBA eða íslenska boltann???
Föstudaginn 29. maí verður haldið körfubolta pubquiz í Smáranum í Kópavogi þar sem stefnan er að safna saman körfuboltaáhugamönnum landsins og körfuboltanördast yfir einum eða jafnvel tveimur íísköldum….
2 saman í liði, 2 þúsund krónur á lið og ískaldur á vægu verði
Í hvaða treyjunúmeri spilaði Michael Jordan þegar hann kom aftur í NBA árið 1995?
Hver er stigahæsti leikmaður íslandsmótsins frá upphafi?
Hvert var viðurnefni Vernon Maxwell?
Baldur Már Stefánsson og Leikbrot.is kyntu vel undir viðburðinum í Smáranum um síðustu helgi þegar þeir tóku nokkra þjálfara tali á þjálfaranámskeiði KKÍ og FKÍ. Menn voru einfaldlega jarðaðir og hafa eflaust verið teknir út af „Útsvars-listanum“ í sínu héraði.




