Búið er að gera eina breytingu á íslenska landsliðshópi A-liðs kvenna en Ingunn Embla Kristínardóttir, leikmaður Keflavíkur, er meidd og eftir mat sjúkraþjálfara liðsins var ákveðið að hún væri ekki leikfær að þessu sinni. KKÍ.is greinir frá.
Auður Íris Ólafsdóttir, Haukum, mun því taka sæti hennar í liðinu á leikunum en hún var í æfingahóp liðsins í aðdraganda leikanna.



