HomeFréttirÍsland sigraði Andorra í fyrsta leik

Ísland sigraði Andorra í fyrsta leik

 

Lið Íslands sigraði Andorra í fyrsta leik sínum á Smáþjóðaleikunum með 22 stigum, 83 gegn 61. Fyrir leikinn, mætti segja að við þeim úrslitum hafi kannski verið búist miðað við árangur þessara liða síðustu misseri. Þó skal það ekki tekið frá íslenska liðinu, sem stillti upp, nánast, nýju byrjunarliði, hversu góður þessi sigur var.

 

Leikurinn í raun eign íslenska liðsins frá fyrstu mínútu. Þar sem að þeir unnu fyrsta leikhlutann með 10 stigum, 28-18, en þegar liðin héldu til búningsherbergja í hálfleik var staðan 47-33.

 

Mest bar á þeim Ægi Þór Steinarssyni (5 stig, 6 stoðsendingar og 2 stolnir boltar) og Kristófer Acox (6 stig og 5 fráköst) í fyrri hálfleiknum, en þess má geta að sá síðarnefndi var einmitt að leika sinn fyrsta leik fyrir Íslands hönd. Ekki amaleg byrjun það.

 

Seinni hálfleikurinn var svo svipuð einstefna og sá fyrri hafði verið. Ísland, hægt og bítandi, bætti við forskot sitt. Leikurinn endaði því með 22 stiga sigri íslenska liðsins, 83-61, þar sem að allir leikmenn liðsins komust á blað

 

Maður leiksins var Ægir Þór Steinarsson, en hann skoraði 7 stig, tók 4 fráköst, gaf 8 stoðsendingar og stal 2 boltum á þeim rétt rúmu 24 mínútum sem hann spilaði í leik kvöldsins

 

Ísland á næst leik á morgun á móti Lúxemborg kl 19:30.

 

Myndasafn (Bára Dröfn)

Myndasafn (Axel Finnur)

Myndasafn (Davíð Eldur)

 

Umfjöllun, viðtöl & myndbrot / Davíð Eldur

Mynd / Bára Dröfn

Fréttir
- Auglýsing -