Íslenska karlalandsliðið vann sinn anna leik á Smáþjóðaleikunum í kvöld þegar liðið vann Luxemborg með 9 stigum, 81-72. Íslenska liðið leiddi allan leikinn og hafði á tímabili 20 stiga forskot. Virkilega góður fjórði leikhluti hjá Luxemborg kom hins vegar í veg fyrir stórsigur hjá Íslenska liðinu. Jakob Örn og Hlynur Bæringsson fóru fyrir íslenska liðinu en Kristófer Acox og Logi Gunnarsson áttu einnig mjög góða leiki.
Íslenska liðið mætti af miklum krafti til leiks í kvöld og spiluðu ákafan varnarleik og mættu gestunum nokkuð nálægt miðjulínu. Það virtist þó vera varnarleikurinn sem hafði sigurinn á báðum endum vallarins því eftir 6 mínútur höfðu liðin aðeins skorað 4 stig hvort. Íslenska liðið var að spila boltanum mikið inná Hlyn og Kristófer en hann átti einmitt eina stórglæsilega troðslu í fyrri hluta fyrsta leikhluta. Seinni hluta fyrsta leikhluta fóru skotin aðeins að detta og hafði Luxemborg frumkvæðið í annars jöfnum leik. Þegar fyrsta leikhluta lauk höfðu þeir 2 stiga forskot á Ísland, 14-16.
Íslenska liðið mætti svo af fullum krafti í annan leikhluta og tóku strax af skarið með 11 stigum gegn tveimur. Forskot Íslands var svo komið í 10 stig þegar fjórar mínútu voru liðnar af leikhlutanum, 29-19. Íslenska liðið hélt því forskoti lengst af öðrum leikhluta þrátt fyrir ágætis áhlaup Luxemborg. Kristófer átti góða spretti og Ægir leiddi leik íslenska liðsins lengst af án þess þó að ná að skora. Helgi Már setti tvo flotta þrista með stuttu millibili og náði Ísland þannig að dreifa pressunni vel á milli manna. Þegar flautað var til hálfleiks leiddu þeir með 7 stigum, 41-34.
Stigahæstur í liði Íslands í hálfleik var Kristófer Acox með 10 stig og 4 fráköst en næstu menn voru Helgi Már Magnússon og Jakob Örn Sigurðason með 8 stig hvor.
Hlynur var ekki lengi að stimpla sig inní þriðja leikhluta og setti fjögur stig ásamt þrist frá Ægi áður en þjálfari Luxemborg tók leikhlé, en þeir höfðu þá ekki sett stig á töfluna í leikhlutanum, 48-34. Það gekk alveg djöfullega hjá Luxemborg að skora í leikhlutanum og forskot Íslands jókst því hægt og rólega. Þegar leikhlutinn var hálfnaður hafði Luxemborg aðeins skorað 1 stig í leikhlutanum og forskot Íslands komið í 16 stig, 51-35. Stuttu seinna brast svo stíflan og Luxemborg skoraði 6 stig gegn einu stigi okkar þar til Craig tók leikhlé fyrir Ísland, 52- 41. Ísland mætti hins vegar mun ákveðnara til leiks eftir leikhlé og snéri leiknum aftur sér í hag. Þeir náðu þannig forskotinu upp í 18 stig þegar flautað var til loka þriðja leikhluta, 65-47.
Hlynur kom Íslandi 20 stigum yfir af vítalínunni þegar þrjár mínútur voru liðnar af fjórða leikhluta, 71-51, og virtist Íslenska liðið því ætla að sigla sigrinum heim. Luxemborg mætti þá með mjög aggressíva og framliggjandi vörn sem gerði Íslenska liðinu erfitt fyrir. Luxemborg náði í kjölfarið að minnka muninn niður í 13 stig, 71-58, áður en Helgi Már svaraði með glæsilegum þrist. Pressan frá Luxemborg reyndist íslenska liðinu mjög erfið og þeir minnkuðu muninn alltof hratt niður. Íslenska liðið virkaði hreinlega ráðalaust í sókninni á köflum og köstuðu mörgum boltum þvert yfir völlinn og beint útaf. Íslenska liðið hafði þó á endanum 9 stiga sigur, 81-72, eftir erfiðan fjórða leikhluta.
Stigahæstur í Íslenska liðinu var Jakob Örn Sigurðarson með 19 stig en næstu menn voru Hlynur Bæringsson með 15 stig og 9 fráköst og Kristófer Acox með 14 stig og 11 fráköst.
Umfjöllun: [email protected]
Mynd: Bára




