spot_img
HomeFréttirMirko Stefán í Hött

Mirko Stefán í Hött

Höttur hefur komist að samkomulagi við Mirko Stefán Virijevic um að hann leiki með liðinu í Domino´s-deildinni á næstu leiktíð. Mirko lék á síðasta tímabili með Njarðvík og þar á undan KFÍ. Mirko á eftir að koma með mikla reynslu og gæði í ungt Hattarliðið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hetti.

Í tilkynningunni segir ennfremur:

Einnig skrifaði Eysteinn Bjarni Ævarsson undir eins árs samning við uppeldisfélagið eftir árs dvöl í Keflavík. Eysteinn er þessa dagana í Finnlandi með U-20 landsliðið Íslands á Norðurlandamóti. Eysteinn er kominn austur í Hérað en Mirko mun mæta á svæðið í haust.

Fréttir
- Auglýsing -