spot_img
HomeFréttirHeiðrún í Hamar

Heiðrún í Hamar

Heiðrún Kristmundsdóttir er mætt aftur í íslenska boltann en í gærkvöldi skrifaði hún undir samning við Hamar í Hveragerði. Heiðrún hefur síðastliðin fimm ár leikið körfubolta við Coker háskólann í Bandaríkjunum en þar á undan lék hún með KR og Hrunamönnum. Þá ákvað hin efnilega Elín Sóley Hrafnkelsdóttir að semja við Hamar en hún kemur frá Breiðablik.

Það rauk úr pennunum í Frystikystunni í gær en eftirtaldir leikmenn sömdu við félagið:

Heiðrún Kristmundsdóttir frá Coker College
Elín Sóley Hrafnkelsdóttir frá Breiðablik
Nína Jenný Kristjánsdóttir og Hrafnhildur Magnúsdóttir frá FSu/Hrunamönnum

Á myndina vantar Elmu Jóhannsdóttir og Anna Marý Karlsdóttir sem og Salbjörgu Rögnu Sævarsdóttur en þær Elma og Anna sömdu við Hamar og Salbjörg framlengdi við félagið. 

Þá framlengdu einnig þær Heiða Björg Valdimarsdóttir, Jenný Harðardóttir, Helga Vala Ingvarsdóttir, Jóna Sigríður Ólafsdóttir og Vilborg Óttarsdóttir. 

Með leikmönnunum á myndinni eru frá vinstri Birgir S. Birgisson stjórnarmaður hjá Hamri og Þórunn Bjarnadóttir sem mun aðstoða í kringum liðið en þessi öflugi leikmaður hefur nú lagt skóna á hilluna góðu og á von á barni. Lengst til hægri er svo Árni Þór Hilmarsson nýráðinn þjálfari Hamars en hann er á sínu fyrsta ári sem þjálfari í úrvalsdeild. 

Fréttir
- Auglýsing -