Íslenska A-landsliðið undirbýr sig nú af krafti fyrir átökin framundan, æfingaleikir eru á dagskránni hér heima og erlendis og svo að sjálfsögðu EuroBasket í Berlín í september byrjun. Þann 20. júlí síðastliðinn var æfingahópur liðsins kynntur til sögunnar og þegar hafa þrír úr hópnum orðið fyrir barðinu á niðurskurðarhnífnum en þeir eru Darri Hilmarsson KR, Ólafur Ólafsson St. Clement í Frakklandi og Emil Barja frá Haukum.
Framundan eru æfingaleikir við Hollendina í ágústbyrjun, fyrst þann 7. ágúst í Þorlákshöfn kl. 19:15 og seinni leikurinn er þann 9. ágúst í Laugardalshöll kl. 16:00 en miðasala á Hollandsleikina er hafin á vefsíðunni tix.is
Íslenski hópurinn lítur þá svona út í augnablikinu:
Axel Kárason – Svendborg Rabbits, Danmörk · Framherji · f. 1983 · 192 cm · 37 landsleikir
Brynjar Þór Björnsson – KR · Bakvörður f. 1988 · 192 cm · 42 landsleikir
Elvar Már Friðriksson – Barry University USA / Njarðvík · Bakvörður · f. 1994 · 182 cm · 11 landsleikir
Finnur Atli Magnússon – KR (á leið til Hauka) · Miðherji · f. 1985 · 208 cm · 19 landsleikir
Haukur Helgi Pálsson – LF Basket, Svíþjóð· Framherji · f. 1992 · 198 cm · 29 landsleikir
Helgi Már Magnússon – KR · Framherji · f. 1982 · 197 cm · 83 landsleikir
Hlynur Bæringsson – Sundsvall Dragons, Svíþjóð · Miðherji · 1982 · 200 cm · 82 landsleikir
Hörður Axel Vilhjálmsson – Mitteldeutscher BC, Þýskaland · Bakvörður · f. 1988 · 190 cm · 35 landsleikir
Jakob Örn Sigurðarson – Boras Basket, Svíþjóð · Bakvörður f. 1982 · 190 cm · 70 landsleikir
Jón Arnór Stefánsson – Unicaja Malaga, Spánn · Bakvörður · f. 1982 · 196 cm · 72 landsleikir
Kristófer Acox – Furman University USA / KR · Framherji · f. 1993 · 196 cm · 3 landsleikir
Logi Gunnarsson – Njarðvík · Bakvörður f. 1981 · 192 cm · 108 landsleikir
Martin Hermannsson – LIU University USA / KR · Bakvörður · f. 1994 · 190 cm · 22 landsleikir
Pavel Ermolinskij – KR · Bakvörður · f. 1987 · 202 cm · 44 landsleikir
Ragnar Ágúst Nathanaelsson – Sundsvall Dragons (á leið í Þór Þ.) · Miðherji · f. 1991 · 218 cm · 22 landsleikir
Sigurður Ágúst Þorvaldsson – Snæfell · Framherji · f. 1980 · 202 cm · 56 landsleikir
Sigurður Gunnar Þorsteinsson – Solna Vikings, Svíþjóð · Miðherji · f. 1988 · 204 cm · 44 landsleikir
Ægir Þór Steinarsson – Sundsvall Dragons, Svíþjóð · Bakvörður · f. 1991 · 182 cm · 20 landsleikir
Mynd/ [email protected] – Emil Barja leikstjórnandi Hauka er einn þeirra þriggja sem skilja nú við landsliðshópinn.




