Undir 20 ára lið kvenna lagði Danmörku í dag í öðrum leik sínum á Norðurlandamótinu í Södertalje, 66-58. Íslenska liðið leiddi nánast allan leikinn, en þurfti að hafa fyrir sigrinum þar sem að Danmörk var aldrei langt undan.
Karfan spjallaði við fyrirliða liðsins Vilborgu Jónsdóttur eftir leik í Södertalje. Vilborg hefur haft hægt um sig í stigaskori, en hefur verið dugleg að mata liðsfélaga sína og er komin með 24 stoðsendingar í fyrstu tveimur leikjum liðsins, eða um 12 að meðaltali í leik.
Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil