Fjórir leikir fóru fram í fyrstu umferð Dominos deild kvenna í kvöld. Bar þar kannski hæst að nýliðar Skallagríms unnu meistara síðustu þriggja ára, Snæfell, í stórleik umferðarinnar. Einnig sigruðu hinir nýliðar deildarinnar, Njarðvík, lið Vals í leik þar sem að Carmen Tyson-Thomas skoraði 53 stig og tók 17 fráköst.
Úrslit kvöldsins:
Grindavík 78 – 63 Haukar
Keflavík 56 – 61 Stjarnan
Njarðvík 77 – 74 Valur
Skallagrímur 73 – 62 Snæfell




