spot_img
HomeFréttirWhite men can´t jump og Space Jam bestu körfuboltamyndirnar

White men can´t jump og Space Jam bestu körfuboltamyndirnar

 

Bíó Paradís í samstarfi með Karfan.is hefur ákveðið að halda upp á 20 ára afmæli myndarinnar Space Jam með sýningu þann 10. desember næstkomandi kl. 20:00. Ljóst er að aðeins er um eina sýningu að ræða og að takmarkaður miðafjöldi er í boði, því hvetjum við alla þá sem að ætla sér að koma og sjá þetta þrekvirki körfuboltakvikmyndasögunnar á stóra tjaldinu til þess að tryggja sér miða sem fyrst.

 

Hérna er hægt að kaupa miða

 

Hérna er viðburður sýningarinnar á Facebook

 

Í síðasta þætti NBA Podcast Karfan.is voru hlustendur spurðir út í það hver væri besta körfuboltamynd kvikmyndasögunnar. Þar völdu lang flestir myndirnar White Men Can´t Jump eða um 49% og Space Jam um 33%. Nokkuð langt þar á eftir komu svo myndirnar He Got Game með 14% og Coach Carter með 12% atkvæða.

 

 

Hér er hægt að hlusta á þáttinn:

 

 

Hér að neðan má sjá niðusrtöður könnunarinnar:

Fréttir
- Auglýsing -