spot_img
HomeFréttirÞór Ak með sigur í Njarðvík

Þór Ak með sigur í Njarðvík

Fimm leikjum er nú lokið í níundu umferð Dominos deildar karla. Nokkuð var um óvænt úrslit og þá helst að Njarðvík tapaði á heimavelli gegn nýliðum Þórs Ak. 

 

Stjarnan komst aftur á sigurbraut með góðum sigri á Grindavík sem hafði fyrir leikinn unnið fjóra leiki í röð í deildinni. Tindastóll hafði ansi öruggan sigur á Skallagrím og hefur nú unnið þrjá leiki í röð. 

 

Haukar unnu svo Snæfell í Stykkishólmi og eru hólmarar enn í leit að fyrsta sigri tímabilsins. Einnig fór fram leikur í 1. deild karla þar sem Höttur styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar með sigri á Hamri. 

 

ÍR vann svo loksins leik í Seljaskóla en það gerðist síðast í fyrstu umferð gegn Snæfell. Það hafðist eftir æsispennandi lokasekúndur gegn Þór Þ. 

 

Von er á frekari umfjöllun og viðtölum úr öllum leikjum dagsins en úrslitin má sjá hér að neðan:

 

Dominos deild karla:

 

Njarðvík 94-105 Þór Ak. 

Tindastóll 97-75 Skallagrímur

Snæfell 78-97 Haukar

ÍR – Þór Þ

Stjarnan 75-64 Grindavík 

 

1. deild karla:

Höttur 78-75 Hamar

 

Fréttir
- Auglýsing -