í kvöld kl. 20:00 tekur 1. deildarlið Vestra á móti FSU í 11. umferð deildarkeppninnar. Liðin eru í neðri helming töflunnar og því væntanlega mikilvægt fyrir bæði lið að ná í sigur í þessum leik. Liðin hafi í eitt skiptið leikið áður í vetur, en það var á heimavelli FSU á Selfossi. Í spennandi leik hafði FSU sigur í honum.
Leikinn í kvöld ætlar Vestri að nýta í fjáröflun fyrir fyrrum liðsfélaga sinn, Þóri Guðmundsson, en sonur hans hefur glímt við erfið veikindi allt frá fæðingu fyrir um ári síðan og til dagsins í dag. Öll miðasala mun renna óskipt til Þóris og fjölskyldu hans. Við hvetjum því alla til þess að mæta á völlinn í kvöld til þess að leggja málefninu lið.
Þeir sem sjá sér ekki fært að mæta en langar til þess að leggja málefninu lið er bent á að hægt er að leggja beint inn á reikning söfnunarinnar.
Reikningsnúmer: 0556-26-100088
Kennitala: 250388-2339
Einnig verða styrktar og afmælistónleikar haldnir í Félagsheimilinu í Bolungarvík þann 7. næstkomandi.




