spot_img
HomeFréttirÓvenju öflug lægð yfir Keflavík

Óvenju öflug lægð yfir Keflavík

 

KR sigraði Keflavík í 9. umferð Dominos deildar karla með 106 stigum gegn 80. Eftir leikinn er KR því áfram í efsta sæti deildarinnar ásamt Tindastól og Stjörnunni á meðan að Keflavík er í 10.-11. sæti deildarinnar með ÍR.

 

 

Hungrið

Bæði töpuðu liðin nokkuð illa í síðustu umferð. KR heima fyrir Njarðvík en Keflavík fyrir Haukum að Ásvöllum. Því nokkuð ljóst að bæði liðin hefðu viljað sýna á sér betri hliðar í þessum leik.

 

Tréverkið

Erlendur leikmaður KR, Cedrick Taylor Bowen, var ekki í byrjunarliði þeirra í kvöld. Eftir frekar dapran leik á móti Njarðvík í síðustu umferð. Hann spilaði þó rúmar 18 mínútur í þessum leik í kvöld, skilaði svosem ágætis framlagi, 14 stigum og 8 fráköstum. Maður veltir þó fyrir sér hvort að KR séu að íhuga að skipta um erlendan leikmann þegar að leikmannamarkaðurinn opnar aftur í janúar og að þessvegna sé ekki verið að nota hann meira þessa stundina.

 

Vendipunkturinn

Keflavík var mun verri aðilinn í fyrri hálfleik leiksins, staðan 37-49 fyrir KR. 12 stiga munur er þó ekki eitthvað sem er óyfirstíganlegt í körfubolta og var því kannski hægt að sjá það fyrir sér að Keflavík kæmi til baka í þeim seinni og gerði þetta að jöfnum leik. Í þriðja leikhlutanum gerðu gestirnir úr Vesturbænum hinsvegar endanlega út um þær pælingar, sigra leikhlutann 22-32 og fóru því með 22 stiga forskot inn í lokaleikhlutann.

 

 

Deyfð

Stórkostleg deyfð hefur verið yfir leik Keflavíkur síðustu vikur. Bæði hafa þeir verið að hringla með leikmanna og þjálfaramál sín og spurning er hvort að það sé að hafa þessi áhrif á liðið? Hópurinn er fullur af hæfileikaríkum leikmönnum og gerum við því ekkert sérstaklega ráð fyrir að þessi lægð þeirra vari neitt mikið lengur. Hinsvegar, er ljóst að tími þeirra er knappur, þeir eiga leik í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar strax á sunnudaginn og ef þeir ætla sér ekki hreinlega að kyssa þá keppni bless, þá verða þeir að nýta morgundaginn vel.

 

 

Tölfræðin lýgur ekki

KR voru betri í flestum tölfræðiþáttum í leik kvöldsins. Kannski helst er að nefna það að KR tók 45 fráköst á móti aðeins 29 hjá Keflavík. Einnig gaf KR 23 stoðsendingar á móti aðeins 11 hjá Keflavík.

 

Hetjan

Hinn ungi Þórir Guðmundur Þorbjarnarson var manna bestur í annars góðu liði KR. Skoraði 20 stig, tók 6 fráköst og gaf 2 stoðsendingar á þeim 32 mínútum sem hann spilaði í leiknum.

 

Tölfæði leiks

 

Myndasafn

 

 

Umfjöllun / Davíð Eldur Baldursson

Mynd / SBS

Fréttir
- Auglýsing -